31.12.04

Undirstöður siðferðisins

Þetta verður afar stutt og er í raun ætlað Hreini, en mig langar að fá fleiri athugasemdir á síðuna mína svo ég skrifa það hér frekar en hjá honum sem væri þó vitanlega sjálfsögð kurteisi.

Semsagt, í fyrsta lagi: Ég hef líka verið að velta fyrir mér narratífi sem grundvelli siðferðis. Realískum grundvelli siðferðis sem staðreyndar í heiminum. Og um leið hvort breyttur frásagnarmáti í bókmenntum hafi áhrif á hvernig við skynjum sjálf okkur sem persónur í heiminum -- sem er eiginlega, að mér finnst, gefið.

Í öðru lagi, annar póll í hæðina, einhvers konar umorðun á Kant í raun, og snertir þriðja heiminn: Ég held að einhver merkilegasti og raunsannasti mælikvarði á réttlæti manns sé hvort hann getur horfst í augu við náunga sinn, óforhertur, skömmustulaust. Ég meina þetta bókstaflega. Ég myndi jafnvel vilja segja þetta vera nákvæmlega það sem greinir að hægrimenn og vinstrimenn: hægrimenn eru þeir sem eru tilbúnir að fallast á, ef ekki fagna, valdatengslum þar sem einn er ofan á og annar undir er þeir horfast í augu, þeir eru semsagt tilbúnir að gangast við forherðingu sálarinnar. Dugmiklir hægrimenn eru tilbúnir að horfast í augu við þriðja heims þrælana sína þrjá eða þrjátíu og segja þeim að fara að vinna - aumir hægrimenn forðast vitanlega slík augnatillit. Vinstrimaður: þessu mætti skipta út fyrir mannréttindasinna eða siðferðisveru -- orðið vinstri getur verið til trafala. Hvar sem þeir standa annars á róttæknikvarðanum, til hvaða aðgerða sem þeir grípa og hvort sem þeir telja sig liberala, anarkista eða byltingarsinna, er þeim sameiginlegt að vilja að allir menn geti horfst í augu, í samskiptum sínum, án þess að fara í störukeppni, án þess að öðrum beri að guggna.

Ég hef hins vegar ekki gert neitt í því að sameina þessar tvær pælingar, narratífuna og auglitið, þó það sé sjálfsagt leikur einn. Þar kemur jafnvel kvikmyndin til sem narratífur miðill -- augnatillit er eitt allra sterkasta narratífa tól kvikmyndarinnar. Hver lítur hvert hvenær, hver lítur undan?

Áður en lengra er haldið ætti ég að senda þér afrit af Aðilafræðinni, Hreinn, einkar vandræðalegri BA ritgerð minni.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þakka fyrir mig, en hvernig er ritgerðin vandræðaleg. Ég treysti því að það komi svo eitthvað meira pródúkt úr þessu hjá þér, eitthvað sem má selja pólitískt impótent vinstrimönnum eins og mér.
Kv, Hreinn