31.12.04

Hið fragíla absólút

Ef til vill besti pólitíski kennibloggari sem ég hef rekist á: Pure Polemics -- Var að lesa þessa grein frá honum: Tsunami, undantekningin og Agamben.

Jæja, en árið ...

Í fyrsta lagi finnst mér áramót undarlega tíð. Ég segi það satt að ég stend með dagbók í fanginu og færi niður hugleiðingar um atburði liðins árs á meðan flugeldar blossa yfir höfði mér, annan hvern dag. Tíunda hvern í mesta lagi. Yfirleitt tekst mér þá að finna einhverja sátt við árið, en þó gerðist oftast ekki nóg og ekki alveg það sem ég vildi. Sem er hvort tveggja í ágætu samræmi við þá mynd af manninum að hann sé það sem hann er ekki -- hann sé stöðug atlaga að því að verða maður, en aldrei fyllilega þar. Gott og vel.

Þetta ár skilgreindist fyrir mig, persónulega, af of persónulegum viðburðum til að rekja hér. Árekstrar hvatalífs og siðmenningar hröktu mig á milli manneskja og landa. Ég var langtum meira persónulegur en pólitískur. Fyrri hluta árs varð mér ekkert gott úr verki, nánast ekki neitt, síðari hluta árs hefur mér ef til vill tekist vel upp við nokkuð, það kemur þó ekki í ljós fyrr en á næsta ári. Enginn hlutur sem er, er hinn sami og hann mun hafa verið, að sér liðnum. Sagði einhver. Já, raunar hafði gamalt austurþýskt dagblað þetta eftir einhverjum, enn sósíalískt, í upprifjun á atburðunum 1989. Blaðið var að hlæja að fréttaflutningi sjálfs sín af vandræðagangi við múrinn, sem brotinn hefði verið á bak aftur. Enda meinfyndinn. Haha.

Hahaha.

Mun ég koma út úr skápnum sem kristinn maður á næsta ári? Mun ég deyja á næsta ári? Mun augnsýkingin sem ég vaknaði með í fyrradag breiða úr sér upp í heila og gera mig vanvita? Eða mun nágranni minn smita mig af staðbundnu taugasýkingunni sem hann fékk og læknar kunna engin ráð við? Er lungnavesenið sem ég hef staðið í á haustinu fyrstu einkenni HIV-sýkingar?

Það er svo mikill dauði í huga mér. Ég var að burðast með dauða allt þetta ár ... gerðum við það öll?

Hm, enn er morgunn, og ekkert sem skiptir máli fer um fingur mér fyrr en líður að kvöldi og ég geri upp við mig hverju ég vil spá mér prívat. Ég stend vörð um hið einkalega ... en já, ef einhver rekst á kassa fullan af dagbókum frá árunum 2001-2003, sem sennilega er staddur einhvers staðar í Vestur- eða Mið-Evrópu, ef einhver opnar þær og sér að þær eru merktar mér, bið ég þann hinn sama eða þá hina sömu að skila mér þeim endilega, lesnum eða ólesnum, en segja mér ekki hvort heldur er.

Ég gæti bölvað mörgu, en þá er skárra að blóta.

Ljóðlínur ársins:
I dare mock the gods - Freyja is a bitch.

Bregðum blysum á loft - á morgun er kominn æði nýr dagur. Og það verður verk að vinna.

Gleðilegt ár, kæru vinir og ókunnugir félagar!

Engin ummæli: