18.12.04

I dare mock the gods.
I believe that Freyja is a bitch,
And that Odin in a dog,
Or else the other way around.

Sólarhringurinn snýst sinn vanadans ... ég birti annars ljóðlínurnar hér að ofan, sem fengnar eru úr Njálu, ekki til að varpa nokkurri rýrð á þýðingaratlögur íslenskra bókmennta heldur þvert á móti til að halda því fram að aðeins þegar texti er þýddur á erlenda tungu komi í ljós raunveruleg gæði hans. Og ég er nógu sammála sjálfum mér í þessu máli til að setja það fram blákalt og reyna svo að verja það ... eða hver myndi trúa því ef Ingibjörg Haralds þyrfti að bæta aftan við Dostojevskí þýðingar sínar: "já, eða þetta var mjög fyndið þegar ég las það". Mér finnst ennfremur að kvæðið hér að ofan standi þýðinguna ágætlega af sér og sé nokkuð skemmtilegt á ensku.

Með öðrum orðum: I believe that Freyja is a bitch.

Þeim var ég verst er ég unni mest. Það er satt sem sumir segja að svona setningar verða aldrei þýddar á fullnægjandi hátt, það er ekki þannig að öll saga, menning, skírskotanir og tilfinningalegt vægi fylgi orðunum. En þeir sem leggja alla áherslu á mikilvægi þess að sín saga, menning, sínar skírskotanir og sín tilfinningahleðsla sé útflutningsverðmætum verðmætara, vitiði hvað Sartre kallaði þá?

"Antí-semítistinn getur aðeins gert sér í hugarlud frumstæða gerð eignarhalds á landi, sem byggir á sannarlegum töfraböndum, sem binda eignina og eigandann dularfullri hluttekningu, hann er skáld hinnar sönnu eignar. Hún umturnar eigandanum og veitir honum sérstaka áþreifanlega næmni. Þessi næmni virðir raunar að vettugi eilíf sannindi eða algildi: hið algilda er gyðinglegt, þar sem það er viðfang vitsmunanna. Það sem næmni hans grípur er einmitt það sem vitsmunirnir ná ekki til. Til að orða það með öðrum hætti er grundvallarlögmálið að baki antisemítisma það að hið áþreifanlega eignarhald tiltekins hlutar veiti honum, nánast með töfrum, merkingu. Maurras sagði það sama þegar hann lýsti því yfir að Gyðingur væri að eilífu ófær um að skilja þessar línur Racines:

Dans l'Orient désert, quel devint mon ennui.

En leiðin er mér fær, meðalmanninum mér, til skilnings á því sem hinir fínlegustu og best ræktuðu vitsmunir hafa verið ófærir um að höndla. Hví þá? Vegna þess að ég bý yfir Racine -- Racine og landi mínu og jörð. Ef til vill talar Gyðingurinn betri frönsku en ég, ef til vill hefur hann betri tök á málfræði og setningafræði, kannski er hann jafnvel rithöfundur. Skiptir ekki máli; hann hefur ekki talað þessa tungu nema í tuttugu ár, ég í þúsund."

Og kvótanum lýkur. Hvers vegna flæðir Sartre óheftur -- jafnvel studdur -- um síður þessa bloggs? Ég rakst á þessa ensku þýðingu þarna efst í leit að ítölsku ritmáli um Íslendingasögur og rámaði í umræður íslenskufræðinga, gott ef þeir eru ekki vinstrisinnaðir, um ómöguleika þess að þýða Íslendingasögurnar almennilega. Annars er ekkert tilefni.

Sólarhringurinn er vitlausu megin. Vakir hvalur?

Hæka morgunsins í boði Gríms Hákonarsonar sem er sennilega kominn heim til sín núna.

Engin ummæli: