4.1.05

Hörmungarnar

Nýtt ljóð á Nýhil.orgi, annars fátt í húsinu nema Ítalir, misvelviljaðir, og tónlist, mismelankólísk. Móðgaður nágranni með ímyndunarveikan nágranna.

Ég hef aldrei séð eða fundið eitthvað sem virðist í alvöru raunveruleg samstaða meðal manna fyrr. Að sjá myndina af Clinton á mbl.is -- það er eins og hann sé í raun harmi sleginn. Og að George W. setji saman ráð undir föður sínum og Clinton saman -- maður sér í gegnum ýmislegt, jájá, vitanlega, og svona tekst W kannski að hylja hversu lítið ríkisstjórnin gefur, með því að hvetja almenning til að dóneita, kannski, og maður spyr sig hvort heimsbyggðin láti svona mikið til sín taka núna af samviskubiti vegna Írak ... en allt um það, hvaða perversjónir sem búa að baki er þetta eins og raunverulegur samhugur. Undarlegt.

Apple.com vefurinn er einn meðal margra sem er næstum því lagður niður undir ákall um fjárframlög. Og hvaða leikkona var það sem gaf milljón dala?

Heyrði Spegilinn í dag, frá 30. desember. Gunnar nokkur Gunnarsson að lýsa skelfilegum senum í Taílandi. Þrjár myndir í huga mér: Bushar tveir + Clinton, fjall af kjöti þar sem manneskjur ráfa um, rýna í leifarnar og leita uppi vini eða ættingja, Gunnar Gunnarsson afgreiddur á hótelrestaurantinum eins og ekkert sé ... þrjár myndir sem ég á ekki annað orð yfir en undarlegt.

Hver var síðasta tilkynnta dagsetning Votta Jehóva á heimsendi? Þetta hlýtur að fara að gerast ...

Engin ummæli: