Todo: todos. Nýuppgötvaður spænsk-enskur orðaleikur í boði þeirra sem finnst þeir ættu að vera á launum hjá íslenskum almenningi fyrir að vinna ekki við fjölmiðla – nóg er nú samt. Todo: tannlæknir. Muna. Og muna tannþráðinn. Og loka gluggunum og kaupa tryggingu. Muna að vinna en ekki gleyma að mennta sig samt. Muna að rukka. Skila vaski, muna að útskýra fyrir vaskstjóranum: nei, hann var brotinn þegar ég fékk hann. Muna að sjá björtu hliðarnar:
„Betur fór en á horfðist á föstudagskvöld þegar húsráðandi nokkur í Reykjavík brást við innbroti á heimili sitt með stóru kjötsaxi. Hjó hann saxinu í andlit þess sem braut upp hurðina að heimili hans þannig að skarst inn að beini frá enni niður undir vör. Klofnaði nef þess sem braust inn þegar saxið fór í gegnum það.“ Hjúkket.
Veisla er haldin til að fagna afmæli konu. Dóttursonur eiginmanns hennar heldur ræðu og vitnar í Salómon konung, en dóttursonurinn er nýkominn heim úr trúboði í Afghanistan: Konan er kóróna á höfði karlmannsins hefur dóttursonurinn eftir konungnum. Og þannig hef ég alltaf litið á þig, þú ert fallegasta djásnið á höfði hans afa. Konan tárast og segir: Þetta er það fallegasta sem hefur verið sagt við mig. Nærstaddir klökkna.
Muna að fara með æðruleysisbænina. Muna að styggja ekki trúaða. Ekki gera neitt. Engan fíflagang. Todo: nada.
Trúboði spyr ungan mann á lestarstöð: Veistu ekki að Jesús elskar þig?
Ungi maðurinn segir: Fyrirgefðu en ég er marxisti.
Veistu ekki að Marx er dauður, spyr konan. Veistu ekki að Marx er í helvíti?
Allt á sinn stað og sinn tíma eins og stóuspekingurinn Marx sagði sjálfur.
„George Bush Bandaríkjaforseti segir líkur á að bandaríska herliðið í Írak verði kallað heim ef öryggisaðstæður í landinu haldi áfram að batna.“ Ég, fyrir mitt leyti, mun standa með fána og fagna strákunum okkar þegar þeir koma heim, umvefja þá hlýju, rista handa þeim brauð – ég er farinn til að vera djásn á höfði dáta.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli