Auðveldast og það sem liggur beinast við: Að syngja eins og Garfunkel. Erfiðast er að muna: Fjallanöfnin, náttúruna. Nei, djók, erfiðast er að pakka: því sem má ekki beyglast en kemst ekki heldur inn í bækur. Best væri að hafa allt gert úr klæði, vísindamenn, sinnið því á meðan ég sinni þessari stúlku.
Í langlanglanglanglanglanglanglanglang—lang—fyrsta sæti yfir allt það sem Bandaríkin hafa fram yfir Ísland er kona Þorgríms Þráinssonar. Eini Hafnfirðingurinn með persnesk augu, eina alvöru hugvísindaskutlan. Hún er eins og hind á hlaupabrettinu, hún er svar San Francisco við þeim systkinum báðum Woody og Lily Allen. Hún var flutt vestur eftir vegna brjóstanna, brjóst hennar eru leynivopn kristinna í baráttunni um sköpunarsöguna, – það verður flett ofan af þeim og þróunarsinnum samtímis, í réttarsal, lögmaður trúaðra bendir og segir: „Ladies and gentlemen of the jury, I rest my case.“ Og orðlausir standa þeir sem áður vildu meina að lífið slysaðist einhvern veginn áfram. Sá dæmalausi lukkunnar pamfíll ég fer með blóm í hárinu, leiðbeiningabæklinginn hans Þorgríms í vasanum og handhægt hátalarakerfi í bakpoka, því mér hefur verið falið að gæta þessara brjósta, gefa þeim að borða og segja þeim hátt og snjallt að vera dugleg að læra heima og dugleg að skrifa heim, hver á annars að hafa tekjur á þessu heimili mun ég segja við þau og svo: skamm! ef þau eru eitthvað að drolla. Maður verður að sinna náminu sínu þó maður sé leynivopn. Þorgrímur sagði mér líka að vera duglegur að strjúka rassinn á konunni hans og senda dónaleg skilaboð, tékk. Tékkitítékk. Fer yfir listann í flugvélinni og merki við á meðan ég segi hátt og snjallt: tékk! við hvern lið, eða úps! ef mér hefur yfirsést nokkuð.
(Mynd af stúlku og strák, fengin úr myndasafni. Neinei, þau tengjast hvorki Þorgrími Þráinssyni né spúsu hans. En þau tengjast hvort öðru, tengslin má kalla x. Xx. MxB.)
Þessa dagana eru allir berdreymnir.

1 ummæli:
Þetta er fallegt: stórstjörnur póstmódernismans. Manni dettur í hug Nick Cave/PJ Harvey. Eða Nico/Jim Morrison. Sartre/Beauvoir kannski? Þetta er fallega meint, sko, ekki að gera neitt grín. Í alvöru.
Skrifa ummæli