6.9.07

Mjölfiðlalúðr

Hvers vegna birtast nú svona margar fréttir um hvaða lönd breyttu ekki stýrivöxtum sínum í vikunni? Hagfræðingur? Bjarki? Ertu þarna? Eða á sálgreiningin betra svar?

Í gær var viðtal við Geir H. Haarde í sjónvarpinu.

Spyrill: Geir, ég ætla ekki að segja að þú sért að ljúga, en þú ert að fela eitthvað.

Geir: Þig varðar ekkert um það.

Spyrill: Ef það er einkamál eða fjölskyldumál læt ég það vitaskuld eiga sig, en getur verið að þessi varnarháttur þinn og flóttamannsaugu stafi af því að þú sért að þegja yfir einhverjum hagsmunum sem ráða í raun orðum þínum?

Geir: Nei.

Spyrill: Hvers vegna svararðu þá með svona þjósti? Þú þarft ekki að fara í fýlu, en ég vil að þú svarir mér heiðarlega.

Geir: Ég er að svara heiðarlega!

Spyrill: Nei, Geir, ég sé það! Það sjá það allir. Þú getur ekkert verið forsætisráðherra ef mér finnst ég ekki geta treyst þér.

Geir: :-|

Spyrill: Við lifum öll í tvíræðu sambandi við tímann, Geir. Bíðum einhvers svo við viljum að hann líði en vitum að okkar er beðið í elli og gröf og viljum ekki flýta okkur þangað … við erum öll tvístígandi – en ertu ekki búinn að týna einhverju?

Topp 16 kostir Bandaríkjanna fram yfir Ísland. Í 16. sæti: Þangað berast ekki íslensk dagblöð.

Engin ummæli: