30.9.07

Miriam Rose

Ef Miriam Rose verður vísað úr landi, af yfirvöldum, er annað hvort ég á móti grunngildum íslensks samfélags og vildi helst verða ógnun við þau, eða þá að stjórnvöld sjálf eru ógnun við grunngildi íslensks samfélags. Og þá þarf að vísa þeim úr landi.
Hm … hér sitja annars bara frómir apar og faðma frómar kerlingar. Hlusta á lög um Judy, brjóta um bækur á síðustu stundu. Í miðju stríði. Löggan þenur sírenur við og við gegnum nóttina svo við gleymum ekki verndinni sem við njótum. Minnir okkur á frelsið og friðinn.
Sendum grunngildi landsins á sjó!
i am grateful menu.jpg
Hér er  matseðill matsölustaðarins What are you grateful for? Þú nefnir réttinn með því að segja til dæmis: I am Feeling Sazzy. You're Feeling Sazzy, great, that's wonderful, segir þá þernan, snýst á hæli. Þú kveikir þér í sígarettu, því þú situr utandyra, en veist svosem að þú kallar það yfir þig: gestur bankar í öxlina á þér og spyr: Excuse me, could you possibly find a way to like put out that cigarette, while we eat, as we are all non-smokers, could you? Og það gerirðu umyrðalaust, búinn að finna þér hneykslunarefni dagsins, sem skítugur Evrópubúi: óþolandi heilsuofstækispakk, hvað er að þessu fólki, passíf-aggressífa nautnasýkisamfélag … þegar þjónustan snýr aftur og spyr skælbrosandi með raddbeitingu sem hæfir kvöldþáttakynni á einhverju networki: Who is Feeling S-A-Z-Z-Y? Og það er alveg óvart sem þú hæðist að henni með því að brosa of gleitt á móti og segja með svip sem minnir allavega sjálfan þig á Bill Murray: I am!
Og það ert ekki bara þú, þið eruð tvö, eins gott, annars værirðu kannski pirraður í alvörunni, nú pirrastu bara í plati, bara til að búa til skemmtiatriði, unir þér svona líka bara ágætlega með frappucino í sólinni. Og veist að nautn þín er tvöföld: þú færð ekki bara vanillusjeik eða jarðarberjamargarítu heldur geturðu hæðst að rétttrúnaðarmatseðlinum á meðan. Sendum grunngildi landsins í sólbað, gefum þeim frappucino. En heyrðu, þið eruð ekki að fara að senda þessa stelpu úr landi í alvörunni, er það?

Blogged with Flock

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Yes we send her away becos soon we will translate the grunngildi into english in the stjórnsýsla and speak serios langage to Saving Iceland about the grunngildi