30.8.07

The bottom line

„Fréttaskýrendur segja að stríð Írana og Bandaríkjamanna myndi valda gríðarlegri olíuverðshækkun, og sennilega heimskreppu.“

Rúv.is.

Jæja, Sumar ástarinnar 2007 gekk svona líka vel, þó að það hafi misskilist í þýðingu. Ekkert gjálífi og léttúð eins og þarna á meginlandinu, þar sem bylgjan hófst 1967 – á leiðinni yfir hafið varð hún að heitbindingum og giftingum. Eiríkur giftist Nödju. Örvar giftist Birgittu. Ýmsir aðrir hafa lagt í vana sinn að elda kvöldmat saman og sofna svo í sama rúmi. Á 40 árum verður allt að íhaldi og er það vel, sjálfur er ég íhaldsmaður í ástum, eins og spænskur anarkisti.

Gott og vel, haust, húm, he-hemm: þetta blogg verður áreiðanlega sérviskulegra héðan í frá en hingað til. Þema dagsins: miðaldir. Þessi tækni hér (sjá vídeó) er kannski stærsta yfirvofandi skrefið frá perspektífi endurreisnarinnar aftur að táknflatarlist miðalda – ég mæli eindregið með því að áhugasamir horfi:


Þetta er dásamlegt skref í augum uppveðraðra hegelista – raunveruleg syntesa. Ljósmyndin var fullkomnun perspektífs og raunsæis, en þegar vélræn framleiðsla og fjölföldun mynda fær að þróast áfram í friði endar hún á að neita grunnforsendu sinni, hinu vélræna raunsæi, og snýr aftur á upphafsreit – sem er hins vegar ekki alveg samur við sig.

Og jújú, vissulega var Photoshop þarna fyrir. En þetta sjálfvirka ferli er eitthvað annað – ef það verður jafn útbreitt og virðist trúlegt er eðli mynda orðið annað: ljósmynd er þá sarpur stærðfræðigreinanlegra táknmynda sem standa í lógískum venslum hvert við annað, frekar en afritaður raunveruleiki. Þetta hafa svosem margir lengi sagt, en upprunalega ljósmyndatæknin togaði þó flesta fastar í átt að raunsæistúlkuninni.

Helstu rannsóknarniðurstöður síðustu vikna: Finnland er allt í lagi en strangt til tekið óþarft. Sem verður seint sagt um Bandaríkin eða hvar væri þetta blogg án uppfinningagleði bandarískra háskóla og herja? Kvikmyndin dó ekki með Bergman, því síður með Antonioni, heldur er nú loks á lífi – það er lífið sjálft sem er, þegar fram í sækir, endurtekning, úrvinnsla, bið … en nú er þetta ekki hinn nýrakaði ég sem tala heldur einhver fúlskeggjaðri fauskur. Ég sjálfur hlakka til að sjá The Silence endurgerða sem Flash teiknimynd.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Magnað. Kíktu á þetta, eiginlega verið að fara í hina áttina:
http://www.ted.com/index.php/talks/view/id/129

Nafnlaus sagði...

40 ára afmæli (minningu) Sumars Ástarinnar verður fagnað í Friskó um helgina. Jet Li mun kynna einhverja munka, annars verður spiluð hippatónlist. aha

Haukur Már sagði...

Þakka fyrir Ted.com hr. nafnlaus, og frk. nafnlaus, til hamingju með 40 ára afmæli ástarinnar. Hún lengi lifi! Húrra! Húrra! Húrra! – og hér verður þvagan yfirleitt vandræðaleg, því yfirleitt muna bara MR-ingar hvort húrrun eru þrjú eða fjögur: Húrra!