5.9.07

Kalda stríðið með lykil í vasanum

Svona var Elton John pólitískur. Enda er ástin pólitískt afl. Ef ég væri poppsöngkona myndi ég gera ástarlag um unnusta minn sem er læstur inni á Guantanamo Bay, fær ekki einu sinni að hafa lykla í vasanum.


Á bókasafni nokkru í Kaliforníu má finna mynd af mér en engan texta um mig eða eftir mig. Minn sterkasti leikur héðan af er að sjá til þess að mín verði minnst sem myndarlega skáldsins. Negla Ragnhildi Steinunni, fá að hafa lyklana hennar í vasanum. Það eru engir smá lyklar. Bruna á lyklunum yfir Bandaríkin þver og endilöng. Það kallaði Lacan „traversing the fantasy“.

Jæja, það eru bara nörd sem fara á bókasöfn. Alvöru fólk les Internetið. Internetið – kemst að kjarna málsins með morgunkaffinu.

Heyrðu, Hermann, ég er með bók handa þér.

Engin ummæli: