5.9.07

Hitt sem ég ætlaði að minnast á áður en ég fer að gera eitthvað: Íslensk dagblöð, hátíð skynfæranna

Þetta hefur gerst einhvern veginn svona: „Ókei, við prentum hvort eð er 100 blaðsíður af rusli og óþörfum texta á dag. Hvers vegna ekki að selja hann bara undir auglýsingar? Er það ekki bara … hræsni, ha?“

Má bera saman við: „Ókei, ég fer hvort eð er heim með 50 gaurum/gellum á ári, hvort eð er alltaf tryllt eða trylltur á barnum. Hvers vegna ekki að taka pening fyrir það? Ha, er það ekki bara hræsni?“

ragnhildurbmw.jpg

Ég leit út um gluggann og sá að þar var ekkert. Ekki neitt. Ákvað að læra til prests. Hélt til Hafnar.

Spurningin er þessi: Hvernig gagnrýnir maður kapítalisma í dag án þess að hljóma eins og boðunarguðfræðingur? Svar: Maður gerir það ekki, maður flýr kapítalismann og fer til Bandaríkjanna.

1 ummæli:

Eiríkur Örn Norðdahl sagði...

"vildi annars ekkert hafa eftir sér um málið"... magnifique!