30.10.06

Greinin i Ekstrablaðinu þyðir varla neitt neitt!

Stærsti fyrirsjáanlegi kostur þess að ganga í Evrópusambandið og taka upp Evru sem gjaldmiðil er að ef til vill lærði fólk á nýjan leik að tala um e i t t h v a ð a n n a ð en gengi íslensku krónunnar sem virðist vera orðinn mælikvarði á alla hluti. Raunar hefur þessi fjarstæða náð svo miklu flugi að setja má fram nýja kenningu um merkingu: merkingarbært er það sem hefur áhrif á gengi íslensku krónunnar stöðugu. Og jafnvel: satt er það sem hækkar gengið eða heldur því stöðugu. Þetta auðveldar vitaskuld alla rökgreiningu til muna, en eins og Wittgenstein áttaði sig á er hætt við að í svo sléttu og felldu greiningarlandslagi missi maður og heimur allt viðnám.

Héðan:

Grein danska blaðsins Ekstra-Bladet um íslenska fjármálaheiminn hefur haft lítil áhrif á gengi íslensku krónunnar, samkvæmt því sem fram kemur í Morgunkorni Glitnis. Gengi krónunnar lækkaði umtalsvert á föstudaginn í kjölfar orðróms um að neikvæðrar umfjöllunar væri að vænta í danska blaðinu. Gengi krónunnar hefur hins vegar hækkað talsvert í dag sem gefur til kynna að söluhliðin á gjaldeyrismarkaði sé áfram sterk. Þó telja sérfræðingar Glitnis líklegt að gengi krónunnar muni halda áfram að sveiflast á tiltölulega þröngu bili.

Engin ummæli: