9.10.06

Brauð og njosnaleikir

Það teljast trúlega nokkuð vel heppnuð klókindi að tilkynna um lækkun matarskattarins, sem á að ganga eftir næsta mars eða kortéri fyrir kosningar eins og Egill Helgason orðaði það, um leið og ríkisstjórnarflokkarnir standa frammi fyrir, að því er virðist, raunverulegum pólitískum skandal – jafnvel skandal á heimsmælikvarða.

Hvort tveggja kemur svo upp um leið og tappað er á stífluna þarna upp frá … á næsta ári vil ég að eitt gerist í einu, kæri Jóli, eitt í einu.

Annars, forsíða Fréttablaðsins í dag: Marel stærst í heimi, og Yoko helgar stað súlunnar sem á að standa að eilífu. Eitthvað stærst í heimi og eitthvað eilíft á sömu forsíðu – ég held að við höfum flutt í heim frummyndanna, ég held að hinn heimurinn sé horfinn, ég held að Baudrillard hafi alltaf haft rétt fyrir sér um alla hluti.

1 ummæli:

Þór Steinarsson sagði...

ég er ekki svona maður sem segi "ég sagði það", en ég sagði það...