Ekki að þetta skuli sjá sem viðbragð við gagnrýni Ekstrablaðsins á viðskiptahætti íslenskra auðjöfra, en það er merkilegt að glugga í ný dagblöð … meðal frétta í Ekstrablaðinu í dag er „fyrsta nasistahljómsveit“ Dana, sem segist flytja hvíta tónlist fyrir hvíta unglinga. Í umfjölluninni birtist vænt textabrot, gott ef ekki heilt sönglag, hljómsveitarinnar, og loks eru lesendur látnir vita hvar má kaupa plötuna, ef ég les dönskuna rétt.
Hvis der mod forventning skulle findes interesserede købere blandt ekstrabladet.dk's læsere, så kan den bizarre udgivelse bestilles på DNSB's hjemmeside.
Hver einasti dagur eilítið trámatískur, hver einasti dagur eins og annar heimur, á hverjum einasta degi: hið ómögulega.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli