– standið því gyrtir sannleika um lendar yðar og klæddir brynju réttlætisins – en Haukur er fluttur hingað.
27.10.06
Fjórði hvalur Hvals 9
Skýrist ekki grundvallarmunurinn á afstöðu Íslendinga og alþjóðasamfélagsins á því að hér nam Kant aldrei land? Íslendingar hafa um nokkra hríð verið hrifnir af nytjastefnu Mills, og vísa bæði vinstri- og hægrimenn í rit hans jöfnum höndum, enda hefur hann verið þýddur og aðgengilegur um áratugabil. Algildishugmyndir Kants rista hins vegar ekki djúpt í landinu, að maður eigi að gera ráð fyrir að útfrá sérhverri athöfn manns megi setja fram allsherjarlögmál. Ef til vill er hreinlega 'hið almenna' ekki til á Íslandi. „Kommón, níu hvalir!“
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli