27.10.06

Að vanda sig og að raska

Ég fékk þessa réttmætu gagnrýni í tölvupósti frá hreinskiptum vini mínum:
„Ég heyrði pistilinn þinn á rás 2 á mánudaginn og mér brá. Það var dálítið einsog að hlusta á táning með tyggjó sem er spurður um álit sitt á einhverju máli líðandi stundar þegar hann er að borða franskar á Kvíkk í kringlunni: "..... ég veit það ekki.... frænka mín sagði einu sinni að það ætti frekar að drepa Íraka en hvali og þess vegna skil ég ekki fólk sem er á móti hvalveiðum.“

Pistilinn krotaði ég einmitt niður í stikkorðum hálftíma fyrir lestur, án þess að vita hver niðurstaða hans myndi verða eða hvernig hann yrði í laginu – því eftir að klára skáldsöguna sem má kaupa hér ofar á síðunni hef ég einmitt eiginlega ekki haft neitt að segja. Ég beitti nokkrum vel þekktum brögðum til að fylla sirka upp í orðakvótann sem Nýhil hafði verið úthlutað, því ekki viljum við missa kvóta. Þetta var svona „ég skil ekki“-pistill, og já, það má skamma mig fyrir að hafa flutt hann, en það má líka verja það með aðstæðum. Pistillinn var það sem má kalla á máli tónlistarmanna lélegt gigg. Hins vegar barst mér það orð á götu að tiltekinn frétta- eða rit- eða framkvæmdastjóri Fréttablaðsins sem hreifst aldrei af ágætum textum sem ég raunverulega skrifaði fyrir það blað, hefði sérstaklega hrósað þessum gufusoðna lestri mínum.

Ef ég er maður 1, vinur minn maður 2, rit- eða eitthvaðstjórinn maður 3, þá sat maður 4 hjá mér og sötraði te áðan og sagði mér í óspurðum fréttum hvernig hann fengi alltaf mest hrós og víðast að fyrir þau blogg og þær greinar sem hann skrifaði með minnstri hugsun og flestum klisjum. Þó úrtakið sé ekki stórt slagar það áreiðanlega hátt í úrtak rannsóknar Stefáns Snævarr á skilnuðum þar sem karlinn er franskur en konan íslensk, svo stætt er á að tala um ástand. En hvaða ástand er þetta og er það ástand okkar, manna 1 og 4, ástand Íslands, ástand Vesturlanda eða ástand heimsins?

Í samhengi, og án þess að hér þurfi að klára pússlið: öll dagblöð og allir fréttaþættir hafa sama snið og kvikmyndir frá Hollywood: hversu mikið sem gengur á, hversu mörgum konum sem er nauðgað, börn myrt, hvaða styrjaldir sem hefjast og lýkur eða lýkur ekki, lýkur fréttamiðlinum alltaf á léttu nótunum. (Og ekki að það sé ekki ljótt að myrða, limlesta eða einfaldlega meiða karlmenn líka).

Engin ummæli: