Á bakvið allar tilteknar kröfur býr grundvallarkrafan um að á mann sé hlýtt. Þegar Jóhanna Vilhjálmsdóttir sviðsetti í gær leikritið „Jóhanna Vilhjálmsdóttir ræðir við Sturlu Jónsson“ skildi ég hvers vegna bílstjórar eru svona reiðir. Sturla og Jóhanna náðu ekki að eiga í sömu samræðunni eitt andartak, heldur bitust bara um tíma, hún til að láta drjúpa af sér stéttafyrirlitningu, láta í það skína að hún og hann væru ekki af sama sauðahúsi. Hann til að segja að þjóðinni væri nóg boðið.
Í máli Sturlu fór ekki mikið fyrir því af hverju þjóðin hefði fengið nóg, hann útlistaði það ekki í smærri atriðum, heldur talaði almennt um, og dæmdi harkalega, að stjórnvöld sinntu ekki landinu, heldur væru með hugann við annað, einkum sjálf sig og útlönd. Þrátt fyrir að ekki sé mikil hefð fyrir andspyrnu gegn valdi kringum Jóhönnu Vilhjálmsdóttur má gera ráð fyrir að henni hefði þótt ívið meira til málstaðar Sturlu koma ef hann hefði verið færður fram með öðru orðalagi. Ekki það, Sturla var beinlínis vel máli farinn. En hann talaði ekki Kormák, og Jóhanna talaði ekki trukk.
Hér áður þurfti fólk að blygðast sín fyrir stéttafordóma sína. Nú má halda þeim til streitu fyrir opnum tjöldum og beita til útilokunar í samræðu.
Þetta var ómöguleg samræða. Í því birtist raunverulegt viðfangsefni átakanna milli vörubílstjóra og ríkisstjórnarinnar: Bílstjórarnir segjast vera að deila við ríkisstjórnina, ríkisstjórnin ansar: neibbs, við erum ekki að deila við þá. Bílstjórarnir ávarpa ríkisstjórnina í annarri persónu, en hún heldur því til streitu að ræða aðeins um bílstjórana, í þriðju persónu.
Mér brá að sjá Sturlu í sjónvarpinu því ég var búinn að gleyma að hann væri til. Svona hefur enginn talað í sjónvarpi í tíu, tuttugu ár.
Allt í einu sló það mig: Í tíu, tuttugu ár hefur enginn talað máli íslenskra verkamanna á almannafæri, komið fram og sagt „við“. Um þá er sagt „þeir“. Og það þykir ekki par fínt að vera þeir. Vinstriflokkarnir voru þessi gátt, en báðir eru nú fyrst og fremst flokkar menntafólks. Hvað sem góðum ásetningi líður, þá talar menntafólk eins og menntafólk og út frá hagsmunum menntafólks.
Þess vegna er ekki rétt sem annars ágætur bloggari, Pétur Tyrfingsson, heldur fram, að þetta sé ekki verkalýðsbarátta. Verkalýðsbarátta hefur oft verið skipulagðari en hún er í dag og orðræða hennar má muna sinn fífil fegurri. En upphafsreitur hennar hefur alltaf verið sá að hópur fólks neitar að láta eins og hann sé ekki til. Þetta er hreinræktuð stéttabarátta. Og þrátt fyrir undanhald síðustu tuttugu ára er hún nógu þroskuð til að beinast að yfirvöldum, en ekki að lögreglu og ekki að útlendingum.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli