Hæstu vextir í heimi – það er ekki tæknilegt atriði heldur existentíalískt. Tryllingslegur glampinn í augum Íslendinga sprettur af óttanum yfir að í þessum mánuði klúðrist það, nú falli það allt saman, nú hrynji spilaborgin, því maður nái ekki að standa í skilum. Þetta má trúlega mæla: það hversu mikið fólk er utan við sig í samhengi við hversu hátt vaxtastig er í löndum þess.
Með verulegum vaxtalækkunum myndi þá mikið sparast í kostnaði við geðlyf. Með fornyrðislagi: Fólk yrði þá sælla.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli