– standið því gyrtir sannleika um lendar yðar og klæddir brynju réttlætisins – en Haukur er fluttur hingað.
27.4.08
Til þess er málið varðar - Adrian Mitchell
Til þess er málið varðar
e. Adrian Mitchell
Sannleikurinn ók yfir mig um daginn
ég hef gengið svona síðan þá
Stingdu fætinum á mér í gifs
og ljúgðu að mér um Víetnam.
Vekjaraklukkan mín orgaði upp í eyrun mín
en ég fann mig hvergi svo ég svaf aðeins meira
Fylltu eyrun mín af silfri
stingdu fætinum á mér í gifs
og ljúgðu að mér um Víetnam.
Ég sé allt brenna þegar ég loka augunum,
gerði mér símaskrá úr marmara, hjó öll nöfnin í hana
Þektu augu mín með smjöri
fylltu eyrun mín af silfri
stingdu fætinum á mér í gifs
og ljúgðu að mér um Víetnam.
Ég finn brunalykt af einhverju, vona það sé bara heilinn minn
Hér rignir eintómum súkkulaðimolum og sóleyjum
Troddu hvítlauk upp í nefið á mér
þektu augu mín með smjöri
fylltu eyrun mín af silfri
stingdu fætinum á mér í gifs
og ljúgðu að mér um Víetnam.
Hvar varst þú þegar ódæðið var framið?
Ég sat við minnismerkið, sat og sötraði slím
Hlekkjaðu tunguna í mér við viskí
troddu hvítlauk upp í nefið á mér
þektu augu mín með smjöri
fylltu eyrun mín af silfri
stingdu fætinum á mér í gifs
og ljúgðu að mér um Víetnam.
Þú setur sprengjuvélarnar inn, þú setur samviskuna út,
tekur mannskepnuna og þeytir henni út um allt
Núðu hold mitt með konum
hlekkjaðu tunguna í mér við viskí
troddu hvítlauk upp í nefið á mér
þektu augu mín með smjöri
fylltu eyrun mín af silfri
stingdu fætinum á mér í gifs
og ljúgðu að mér um Víetnam.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli