9.4.08

Sósíalistar, munið sumarbúðirnar!

Frábærasta hugmynd allra frábærra hugmynda þessa árs er loksins komin fram! Sigurvegarinn er engin önnur en kærastan mín sem hefur þurft að stríða við eitthvað óþol í stráknum síðustu daga. Lausnin á önuglyndi landsins bestu sona og dætra er:
slis2008.gif
Við leigjum Kaldársel eða annan stað, helst með sundlaug. Það verður kynskipt að hætti Hjallastefnunnar á daginn, en allir koma saman á kvöldin. Helgi, vika, tíu dagar, kreppa, matur, tússlitir, pappír, leikir, árabátar, áríðandi spurningar, útúrsnúningar, orðaleikir og stanslaust tuð.

Þeir sem vilja taka þátt í skipulagi meldi sig í kommentum. Fyrirfram verður gert ráð fyrir þátttöku Kristínar og Loðmfjarðar, Norðdahls og Norðfjarðar, Stínu Eiríks, Ása og Snorra Ásmundssona, Vídalíns, Guðrúnar Evu, Guðrúnar Helgadóttur, Ármanns Joð, Vals B. A., Olgu Guðrúnar, Guðrúnar Elsu og Ingós, Bjargar og Darra, Önnu Bjarkar, Magnúsar, Þórs Steinarssonar, Steinunnar súrkúlu og Snorra, Auðar Jóns og Tóta, Danna Karls, Godds, Heiðu, Elvars, minni og minnar – hér eru gríðarmikilvægir þátttakendur að gleymast, en sósíalistar, þeir móðgast ekki.

Lýst er eftir góðum stað til að halda búðirnar um leið og lýst er eftir þér, vinur!

---

Nú þegar hefur borist þátttökutilkynning frá Heiðu, sem býður líka fram stað:

Hellvar mætir, getum haldið þetta úti í móa uppi á velli þar sem við búum. Leitt rafmagn út um stofugluggann okkar (rafmagn er innifalið í leiguverði okkar). Svo bara tjöld. Endalaust mikið af tómum byggingum frá auðvaldinu að skoða..

Þátttakendur í þessum enn alveg óskipulagða atburði geta birt lógóið, til dæmis svona lítið:

slis2008.gif
á bloggum sínum, til marks um stuðning og smölun.

4 ummæli:

Þór Steinarsson sagði...

Ég er móðgaður.

Hildur Lilliendahl sagði...

Ég líka.

Birgitta Jónsdóttir sagði...

en konservatívir anarkistar eins og undirrituð - sem vildi gjarnan læra að gera pappírsbát?

Birgitta Jónsdóttir sagði...

meiga þeir vera móðgaðir? en annars frábært framtak - einhver hugmynd um tímaramma?