Svo það sé bókfært:
24 Stundir kjósa að fjalla frekar um önnur mótmæli en þau í gær, og gefur til kynna með fyrirsögn við þá umfjöllun, inni í blaðinu, að hið fréttnæmasta við atburðinn í gær sé hversu lítið fréttnæmur hann í raun sé. Á forsíðunni fær fréttin yfirskriftina „ÓEIRÐIR“ með stórum stöfum – þar með er ábyrgðinni velt á bílstjóra, auk þess sem myndefni á forsíðu mætti lýsa sem „smáræðis stympingum“ digurra manna við lögreglu. Móðurblað 24 Stunda, Mogginn sjálfur, ýtir fréttinni til hliðar, á forsíðunni, sem aukaatriði, þetta „fór úr böndunum“ – en tillaga bankastjóra um að skattfé megi beita til að verja rekstur hans fyrir áföllum fær sýnu meira rými, fyrir miðri forsíðunni. Bæði blöðin sýna lítils háttar stympingar, þar sem bílstjórar virðast helst gerendur og lögreglumenn þolendur, en þau veigra sér við að birta myndir af því sem nærstöddum og sjónvarpsáhorfendum blöskraði. Þetta er ritstjórnarstefna Árvakurs, orðuð svo af Styrmi Gunnarssyni að Morgunblaðið sé jákvætt blað. Fréttablaðið gerir atburðinum býsna góð skil, eins og ríkismiðlarnir gerðu líka í gær. Raunar ber Sjónvarpinu sérstakt lof fyrir að endast við beina útsendingu frá Rauðavatni jafn lengi og raun ber vitni.
Ofbeldi og yfirgangur lögreglu er yfirleitt aðeins kvittur sem fer um meðal þeirra sem fyrir verða, en kemst sjaldan upp á yfirborðið með svo óyggjandi hætti. Því hefur það yfirleitt virst tilfallandi og jafnvel persónubundið, frekar en hluti af skipulagi ríkisins. Viðbrögð lögreglu virðast reyndar hafa miðast við allt, allt annars konar samkomu og ástand en hér var á ferð, og þannig beinlínis skapa og skerpa stéttskiptingu frekar en einfaldlega styðja hana. En viðbrögð ráðamanna virðast staðfesta nú sýnilega staðreynd: að róttækri stéttskiptingu á Íslandi verði viðhaldið með líkamlegri valdbeitingu ef svo ber við.
Og telst ekki til tíðinda á sumum bæjum. Fulltrúi lögreglunnar gaf skýrt til kynna í viðtali við Helga Seljan, sem virtist vera nokkuð brugðið yfir því sem hann hafði séð, að lögreglan liti fyrst og fremst á framgönguna sem vel heppnaða aðgerð. Svona mun hún nú gera. Fullorðins.
(Þrátt fyrir þessi furðulegu hróp: Gas, gas, gas! – og önnur hróp lögreglunnar um táragas við endurtekna rýmingu svæðisins, þá lögðu menn sig í lima, eftir mótmælin, við að draga úr því við fjölmiðla að um táragas væri að ræða, og tóku upp önnur orð til að slíta það samhengi sögunnar að þetta væri í fyrsta sinn frá 1949 sem íslensk lögregla beitir táragasi á mótmælendur. Táragasið varð að piparúða, jafnvel varnarúða, ekki ólíkt því sem einkaþota varð á dögunum að leiguflugvél. Furðu margir fjölmiðlar hlýða svona tilmælum. Piparúði er sennilega nær lagi efnafræðilega, en efnafræðin skiptir minnstu máli: eins og 1949 beitti lögreglan hér efnavopnum við að ryðja vettvang mótmæla. Efnavopn, ekki hljómar það vel.)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli