30.4.08

Málfarsráðuneyti Sjálfstæðisflokksins

– Nei, djók, það er ekki til neitt eitt Málfarsráðuneyti: Öll ráðuneyti Sjálfstæðisflokksins eru málfarsráðuneyti. Guðlaugur Þór, málfarsráðunautur, veitir nú leiðbeiningar um hvernig skuli hliðra umræðu um heilbrigðismál, svo þau verði að viðskiptum:

„Þeir kostir sem ætlunin er að ná fram með starfsemi sjúkratryggingastofnunarinnar og markvissri notkun á mismunandi greiðslukerfum eru aukið gegnsæi á starfsemi sjúkrahúsa, aukinn hvati til afkasta og sveigjanleiki til að beina starfsemi í ákveðinn farveg miðað við þörf á hverjum tíma. Þannig verður einfaldara að taka á biðlistum og að efla ákveðna þjónustu í samræmi við stefnu ráðuneytis og áherslur á hverjum tíma. Markmiðið er að til verði fjármögnunarkerfi sem með ákveðnu gegnsæi stuðlar að trausti milli kaupenda og seljanda þjónustu, fjölbreytilegri rekstrarformum, markvissari fjárveitingum og bættri fjármálastjórn heilbrigðisstofnana.“

– úr ræðu á ársfundi Landspítalans í gær, skv. Mogganum í dag. Lykilorðið er sannarlega gegnsæi.

Engin ummæli: