GUÐBERGUR Bergsson, landsþekktur akstursíþróttamaður, var sýningarstjóri á Sportbílasýningunni í Laugardalshöll um síðustu helgi. Hann hleypur í skarðið fyrir Ragnar Halldórsson sem Sverrir Þóroddsson skoraði á í síðustu viku. Listi Guðbergs yfir þau tíu farartæki sem hann kysi helst í sinn bílskúr er af fjölbreyttara taginu. Þar má sjá þotu, þyrlu og ofursportbíla en líka mótorhjól af sverustu gerð. Fyrst myndi ég velja Lamborghini Gallardo. Ég er ekki farinn að keyra svona bíl en hann er ansi hreint fallegur. Ég þori ekki að nefna Ferrari Enzo því það er eiginlega ekki hægt að keyra hann hérna.
Gagnasafn mbl.is | mið. 16.6.2004 |
Engin ummæli:
Skrifa ummæli