31.10.04

Kall og kyll

Það er þá helst í fréttum að vindmyllur sem tókust á loft í Suður-Evrópu fyrir margt löngu síðan eru farnar að láta á sér kræla í Skandinavíu, það glitrar fallega á þær í kvöldsólinni, flugumferðarstjórn hefur áhyggjur, vísindamenn spyrja sig hvort þær muni hafa áhrif á golf-strauminn og gróðurhúsa-þaðalltsaman – póstmarxistar velta fyrir sér hver ásetningur vindmyllanna sé en frá Cambridge og Brighton berast þau skilaboð að vindmyllur hafi ekki ásetning, aðeins atferli, hins vegar skipti það ekki máli.

Með öðrum orðum: Veit einhvern við hvern Stefán Snævarr er að tala í greinum sínum á Kistunni? Hverjir eru málfeigðarsinnarnir sem hann ávarpar?

Raunar skrifaði málfeigðarsinninn jonf@hi.is í Morgunblaðið á dögunum – það er freistandi að finna hómófóbíu í þessu, en þó virðist frekar vera um heiðarlegan ótta við breytingar og misskilning á tungumáli að ræða … ég held ekki að þetta sé höfuðandstæðingur SS:

Það er alkunna að ensk tunga hefur mikil áhrif á íslensku. Áhrifanna gætir með ýmsum hætti. Eitt þeirra orðasambanda sem rekja má til ensku er koma út úr skápnum (e. come/be out of the closet). Í ensku er merkingin sú að sá sem kemur út úr skápnum segir öðrum að hann sé samkynhneigður eftir að hafa haldið því leyndu. Í íslensku var orðasambandið notað með svipuðum hætti og í ensku en nú bregður svo við að það er notað í merkingunni láta skoðun sína í ljós; sýna sitt rétta andlit; koma fram, t.d.: ráðherrann verður að koma út úr skápnum og tjá sig; [Skjár einn] kom rækilega út úr skápnum síðast liðið vor þegar Egill Helgason var flæmdur burt af stöðinni (10.7.04); Guðfræðin kemur út úr skápnum (25.8.03) og [Mogginn] kom út úr skápnum og fór að púsla saman greinum í leiðara sína (7.7.04). Umsjónarmaður kann þessu illa og telur að í þessu efni sem öðrum sé best að saman fari kall og kýll, hið enska orðasamband hafi verið fengið að láni ásamt merkingunni.

Hvernig birtir maður myndir á blogger? Ég er með íðilfagra mynd af verkum brennuóðra vandala sem fóru um hverfið mitt í gær og hlýddu kalli náttúru sinnar.

Hvalveiðisandalar fást á ebay.

H.

3 ummæli:

Einar Axel Helgason sagði...

Þú verður að vísa í myndirnar á aðra síðu. Mín lausn er sú að ég vista myndina á kasmir.hugi.is (hugaheimasíðunni sem enginn notar), og vísa svo í hana á blogginu. Ekki segja neinum.

Gummi Erlings sagði...

Mæli eindregið með imagelink.org, getur fengið frían aðgang, þokkalegt pláss og bandvídd.

Líst vel á meira salt, vonandi heldurðu þessu áfram.

Nafnlaus sagði...

Ég hef einmitt verið að pæla í því við hvern Stefán Snævarr er að tala. Mér vitanlega hefur aðeins einn einstaklingur einhvertíma talað um háan kostnað þess að tala íslensku, Benedikt Jóhannesson. Og segist hafa verið að grínast. Það er eins og að Benedikt sé orðinn að fjölmennu félagi málfeigðarsinna. Ætti einhver að hringja í Stefán og athuga hvort hann er nokkuð að berjast við raddir geðveikinnar?