11.10.04

Astin, þrældomurinn, hið almenna

Ég þoli ekki drama. Nenni því ekki … er hrifnari og hrifnari af hinu ómögulega íslenska orðasambandi „að vera saman“. Það felur í sér ógurlegan en jafnframt þægilegan og aðlaðandi misskilning um að samband sé staða en ekki hreyfing eða ferli. Þegar sunnar dregur í Evrópu talar fólk um að fara saman eða ganga saman – þannig er tekið til orða í Þýskalandi og Tékklandi – og enn sunnar eykst hreyfingin svo Ítalir og Spánverjar tala um að eiga sögu saman. Það er mergurinn málsins og heili helvítis vandinn, að fólk leggur upp í sögu saman, hvort sem það lítur svo á eða ekki, og þar eru bæði ris og hnig – og dramatísk element, sem eru best til þess fallin að gera menn sturlaða. Þarf ég að minnast á Hamlet?

Þessi staðreynd fellur engan veginn að heimsmynd minni, sem á sér ekkert meta-narratíf, heldur aðeins pínu-narratíf úr þriggja þátta kvikmyndum, þar sem öllum sögum lýkur einmitt þar sem þær í alvöru heiminum hefjast. Ég hef þá helst hina rómantísku gamanmynd í huga, þar sem eilífðin birtist sem tvær manneskjur í rigningu – önnur er asnalegur og anal-retentífur Breti sem hleypur á eftir hinni og biður hana klunnalega að giftast sér ekki mjög mjög lengi. Svo kyssast manneskjurnar og myndinni lýkur með fullnaðarsigri ástarinnar. Eftir kossinn stöndum við hefðarlausu aumingjarnir á gati. Mér eru engin klúrheit í huga.

Eins og einhver hefur minnst á þá er góður endir enginn endir. Eins þó ástin standi af sér eitt og annað sigrar hún ekki dauðann.

Ég velti því fyrir mér hvort annað eigi ef til vill við um gamla módelið, þar sem „sigur ástarinnar“ var í rauninni sigur karlsins á konunni, eða sigur karlsins á föður konunnar, sem þar með var gefin og undirgefin manni sínum til dánardægurs, sem oftar en ekki er dánardægur karlsins en þeir eru að jafnaði ívið skammlífari en konur. Jæja, nú stendur Vesturlandabúum hvorki tilfinningalega, félagslega né raunverulega til boða að mynda ástarsamband á grundvelli þræls- og húsbóndalíkansins – okkur ber í öllu falli að virðast nálgast hvort annað á jafnræðisgrundvelli.

Eins og ómenntaður breskur öreigi í White Teeth Zadiear Smith spyr ítrekað sjálfan sig: Hvers vegna getur fólk ekki bara lifað í friði eða harmóníu eða eitthvað?

Kunnugum geri ég ljóst að í raunveruleikanum er ekki stór krísa í gangi – ég er ekki nema að hálfu að tala um veruleikann, ég er fastur á sviði hins almenna og á bágt með að stíga niður.

Bestu,

H.

Engin ummæli: