Jæja! Djöfull er kominn tími til að – blogga! Og ég segi – blogga! eins og Steinar Bragi segir - steppa! Ég var að – vakna!
Kerry
Kerry tapar kosningunum fyrir að minnast á kynhneigð dóttur Cheneys. Ég held þetta hljóti að vera svo einfalt. Og þó er vitanlega ljóst að hefði hann ekki minnst á Mary Cheny hefði hann klúðrað einhverju öðru og hefði hann ekki klúðrað því hefðu götusteinarnir klúðrað því fyrir hann því við vitum öll að Bush á fjögur ár eftir. Við vitum að hann hefur verið sendur til að vinna verkefni sem hann þarf að klára. Enn gengur fjöldi ómyrtra múslima laus. Takið, vinsamlegast, eftir biblíutilvísuninni.
Ég er semsagt kominn í heiminn aftur, eftir að hverfa í nokkra daga við umsóknarvinnu. Setti saman mína fyrstu rannsóknaráætlun und zwar á þýsku … það er stórgaman að setja saman rannsóknaráætlanir. Formið er til – prófsteinninn er ekki ég sjálfur heldur kemur hann utan að, hann er samþykktur og ég get leitað ráða án þess að leggja alla veru mína að veði. Er ekki rétt að við játumst því annars að við erum allir expressjónistar, svona alla jafna? Við öll.
Líka samkynhneigðir.
Jæja – hitt ber að játa að það er ótrúlega fátt að frétta af manni sem situr heima hjá sér og raðar saman rannsóknaráætlun. Einkum ef hann kærir sig ekki um að ræða rannsóknaráætlunina … ekki að svo stöddu máli … ekki tímabært … við munum sjá hvað setur en málið er komið í farveg.
Og nú er semsagt stund milli stríða … samt, það er alltaf eitthvað fólk að ónáða mig. Ég hef ekki rætt hér frönsku stúlkuna sem ég leigði hjá fyrr í sumar? Frakkar eru jafn alfarið óþolandi í eigin persónu og þeir geta verið heillandi á bók. Nú er þetta allt saman túlkunaratriði, og ég ætla ekki að þykjast rýna í eðli Frakkans sem slíks – með öllum hugsanlegum fyrirvörum afstæðishyggjumanns við öll hans orð: Frakkar líta nefnilega svo á í einkalífi, eins og þeir eru frægir fyrir í heimspeki, að tungumál sé ekki til samræðu, heldur til einræðu. Og þetta er alfarið heillandi – stúlkan sem ég leigði hjá er heillandi og virðingarverð – en um leið óþolandi. Indulgent – hvernig segir maður það á íslensku? Stúlkan er tildurrófa?
Allt almennilegt fólk er raunar óþolandi tildurrófur … hefur einhver horft á Annie Hall nýverið? Ef ég væri menntamálaráðherra myndi ég leggja fram lagafrumvarp um að hún væri sýnd í Ríkissjónvarpinu einu sinni á ári, ég myndi jafnvel íhuga skylduáhorf. Alby Singer/Woody Allen á þennan brandara í upphafi myndarinnar, um tvær konur á veitingastað, kvartandi yfir matnum: Þetta er bragðlaust, ofeldað, og grænmetið er skemmt. – Já, ég veit, segir hin, og svo er skammturinn alltof lítill. Svo segist Woody þennan brandara túlka viðhorf hans til lífsins í hnotskurn – ásamt hinum, sem hann hefur frá Groucho Marx, um að myndu aldrei vilja vera í klúbbi sem hefði mann eins og hann sjálfan fyrir meðlim.
Djöfull geta óbeinar tilvitnanir verið langar, sagnmargar og leiðinlegar. Afsakið.
Google
Nýtt form: Ég mun semsagt hefja hvern kafla á umfjöllun um fréttnæman viðburð, og ráfa svo jafn langt af leið og ég kemst, þar til ég lendi ofan í gjótu, eins og hér að ofan, skríða þá ekki upp heldur klippa, also cut!, og byrja upp á nýtt, á nýjum stað.
Hann Godard var einu sinni spurður hvernig hann tæki og klippti myndirnar sínar. Hann sagðist fylgja viðfangsefninu í hverri töku jafn langt og hægt væri og klippa svo þegar engrar annarrar undankomu væri auðið. Ég veit ekki hvort ég geri þetta hér með að minni bloggtækni, eða hvort þetta hefur ef til vill alltaf verið bloggtækni okkar allra, en also: Google!
Persónulega leitarvélin. Búin að heyra þetta? Heitir google desktop og leitar á harða diskinum þínum um leið og hún leitar á netinu … málið er, maður hefur verið tregur til vegna þess að þeir eru með svo litríkt og bjart lógó, voru svo snjallir ungir strákar og byrjuðu bara í bílskúr eða þar um bil, en það er kominn tími til að viðurkenna það: Google er líka óvinur manns.
Ekki þar fyrir að google er eina leitarvélin sem ég nota. Og þeir eiga blogger.com sem ég nota líka. Og þeir gera netið af betri stað svo héðan vil ég aldrei fara. En það er einmitt þetta … apple dreifði góðu tónlistarforriti í nokkur ár sem varð uppáhald allra og tilkynntu svo einn daginn: Nú er gott orðið betra! Tónlistarforritið þitt hefur breyst í tónlistarbúð! – Semsagt, það er verið að narra okkur. Og ég læt fyllilega narrast því þetta er samtíminn allur og ég vil ekki missa af honum en andskotinn sjálfur! Hafa ekki verið gerðar góðar rannsóknir á brotthvarfi einkalífs? Ég meina ekki bölsýnar framtíðarspár heldur rannsóknir á raunverulegri stöðu mála – ég held að við gerum hundrað sinnnum færra í felum, talið í mínútum eða fenómenum, en jafnaldrar okkar fyrir tuttugu árum. Ég held að einkalífið sé nánast horfið, og við höfum ekki tekið eftir því, því við vorum upptekin af því að tala um hvernig einkalífinu stafaði hætta af þessu öllu saman. – Stafaði hætta – semsagt, eitthvað gæti gerst í framtíðinni. Íslensk erfðagreining og svo framvegis. Á meðan stakk einkalífið bara af.
Og hverjum finnst ekki gaman að blogga? Og hver heldur ekki að þetta sé jafnvel gott fyrir sálarlífið? Og þrælhúmanískt?
Mér datt eitthvað í hug í miðjum klíðum en gleymdi því svo.
De Niro
Jájá …
Social Forum
Ég er ekki þar. European Social Forum stendur yfir í London, þessa helgi, og ég man hvernig ég hugsaði með mér þegar ég frétti af stað- og tímasetningu í byrjun sumars: Frábært! Þetta er í grenndinni, EasyJet er til, ég skelli mér loksins! Október … fimm mánuðir til stefnu. Svo skall það á mér í fyrradag þegar kunningi minn spurði hvort ég þekkti fólk í London, hann væri á leiðinni á Social Forum – ég hugsaði: Ha, voru ekki fimm mánuðir til stefnu!? Og uppgötvaði umsvifalaust að þetta stemmdi, þeir væru also liðnir. Þannig óttast maður á köflum að lífið allt gæti farið á mis við mann. Hver er farinn að huga að ellilífeyrismálum?
En gott og vel, mér finnst ég eilítið nærverandi þar sem ég kom tveimur vinum saman sem ég vona að hittist, hjálpist að og hrífist hvor af öðrum … og heiminum verður sennilega ekki fyllilega bjargað næstu 12 mánuði, svo enn gefst færi á fyllri þátttöku.
Nóg, þetta er nóg!
H.
3 ummæli:
Já, alltaf gaman að vitna í Godard. Kannski verðugt rannsóknarverkefni að greina hvað kallinn hefur sagt og hversu mikið af því hann meinti og hversu mikið sé að marka það sem hann hefur sagt og hversu mikið af því telur hann sjálfur að sé að marka af því sem hann hefur sagt. "A travelling shot is a moral decision". Ég er enn að pæla í þessum. Tökumenn eru ófeimnir að demba þessu á mann þegar maður vill gera eitthvað flott í stuttmyndinni sinni. Af því þeir eru latir í eðli sínu.
Já, annars vildi ég bara kommenta. Datt bara ekkert skárra í hug.
Hver er Gummi og hvar finnur maður þessa lötu tökumenn? Ég er einmitt vanari því að tökumaðurinn þrýsti á að maður 'koveri' allt – já, þetta er fallegt skot, en tökum nú hin þrjú til öryggis … latur tökumaður sem vitnar í Godard hljómar æði forvitnilega.
Gummi er wannabe-kvikmyndagerðarmaður, með skuldir á baki eftir allt námið. Godard-tilvitnun var reyndar sögð í stríðni (að auki af vini mínum), en vísaði til tilhneigingar margra reynslulausra leikstjóra til að vilja löng og flókin dollískot sem tekur langan tíma að skipuleggja og flókið að lýsa.
Skrifa ummæli