4.5.05

Það barst tilkynning

Ágætu menn, ágætu konur,

allsherjarvörutalning sem staðið hefur yfir síðustu þrjá daga hefur leitt í ljós að forðabúr heimsins innihalda næga næringu og fíkniefni til að halda mannkyni og helstu gæludýrum þess á floti í um tvö ár, án þess að frekari ræktun eða framleiðsla fari fram – raunar er til meira af góðgæti en líkur eru til að sex milljarðar manna gætu torgað á þeim tíma þó þeir reyndu – og hefur allsherjarráð Sameinuðu þjóðanna afráðið að ganga á þessar birgðir 18 mánuði á meðan framleiðsla í heiminum verður lögð niður, hagkerfi heimsins endurskoðað og grundvallarhugmyndum rústað. Þykir ljóst að hugsunin, orðin, trúin og mennskan hafi ekki fyllilega haldið í við þróun heimsins um hríð og komst allsherjarnefnd allsherjarráðs að þeirri niðurstöðu að vangaveltur yrðu nú ekki um flúnar.

Byrjað verður á allsherjarskralli, sem verður óskipulagt með öllu en gert er ráð fyrir að muni standa í um þrjár vikur og hefur heyrst að meðal þeirra sem ætli sér að gera allt vitlaust sé Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra til þessa, héðan í frá og þar til annað kemur í ljós, einfaldlega maður – þátttakandi í anarkísku hópferðalagi.

Eru starfsmenn allra vinnustaða beðnir að virða tilskipunina að því marki sem þá langar og sjá sig ekki til neins knúna – yfirmenn mega gefa skipanir, hafi þeir gaman að, en peningar verða teknir úr umferð þegar í stað. Ekkert lögregluyfirvald hefur verið skipað til að standa að baki hinum nýju ólögum, en heyrst hefur að á götunum séu ýmsir meira en fúsir að taka þá sem skiptast á „fé“ í karphúsið, jafnvel í bakaríið.

Ekki hefur spurst til þess að nokkur sé mótfallinn söfnurum enda starfi þeir á heiðarlegum forsendum en svo virðist vera sem almennt sjái fólk í gegnum lygi og óheiðarleika og geti afhjúpað þá sem raunverulega verða uppvísir að græsku.

Hvíldin, endurskoðunin, íhyglin, rústunin og vangavelturnar hefjast nú þegar í stað, það er við lestur þessarar tilkynningar, sem gert er ráð fyrir að hafi borist hér um bil allri heimsbyggðinni innan þriggja sólarhringa.

Með kærleik í hjarta, von og trú um stuð og meiri mennsku,

f.h. Sameinuðu þjóðanna,

maður á götunni.

2 ummæli:

Haukur Már sagði...

Þá verð ég í þetta skiptið fyrstur til að gera athugasemd hjá sjálfum mér – er ekki hægt að koma á allsherjarverkfalli, byltingu eða efnahagshruni í það minnsta, með einu góði spami? Hefur verið reynt á það? Hér er ljóðskálda þörf! Að skrifa svo stórkostlega vel heppnaðan bjúrókratískan tölvupóst að hagkerfi heimsins lamist! Keppni! Keppni! Það er keppnI!

Þór Steinarsson sagði...

Loksins