24.5.05

Sálat

Hvalveiðiófétið heldur áfram að fylla upp í gloppur internetsins. Google finnur hvorki „friðlaus sál“ neins staðar, né „sálin finnur engan frið“. Því er þá hér með komið til skila, til almættisins.

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

innri rósemd
mitt eiginlega sjálf
þessi þarna Osama Bin Laden gaur

einhver hlýtur að vera að leita að þessu líka.

Nafnlaus sagði...

Ég les alltaf "sáðlát" í fyrirsögninni, alltaf. Google er ekki á sama máli.

Kv, Hreinn

Nafnlaus sagði...

Ætli þetta sé eitthvað undirmeðvitundarmál? Sjálfur les ég alltaf 'salat'. Það veldur mér áhyggjum.

-Eiríkur

ps. fyrir google: bindiklám

Nafnlaus sagði...

ætli sálin finni frið núna þegar "friðlaus sál" og "sálin finnur engan frið", eru bæði komin inní leitarkerfi google, með þinni hjálp?
eða hefur þá leitin þegar breyst í leit að "sálarfriður" og "sálin finnur frið"?

Hvort skapaði Batmann Jókerinn eða Jókerinn Batmann? Núllar eitt endilega annað út? Eða er þetta spurning um hver gerði hverjum hvað fyrst?
Ævinlega!

Ps: ef ég læsi fyrir-sagnir myndi ég örugglega yfirleitt lesa "raðfullnægingar" útúr þeim öllum. Hvað segir það um fyrirsagnir?

kv. Gimó