Svei mér þá, svo virðist vera sem Hindu Kush hafi þýðingu, ef ekki pólitíska, þá meta-pólitíska. Nafn fjallgarðsins sem liggur um eða í Afghanistan merkir „Hindúaslátrun“ og eru leiddar að því líkur að þar hafi átt sér stað orrusta á milli hindúa og múslima fyrir um eitt þúsund árum þar sem hindúum hafi verið slátrað ýmist eða þeir hnepptir í þrældóm, og örnefnið látið vera þeim til viðvörunar allt frá því. Til er hópur Hindúa sem vill að þessarar sögu sé getið í kennslubókum í indverska skólakerfinu, sem er í dag ekki raunin, og yrði enda sjálfsagt ekki fyrst og fremst varða til að varðveita frið …
Hefndin, já, lygin, já, dauðinn, já, þetta er allt þarna … en ég hryggi fyrirspyrjanda og að nokkru leyti sjálfan mig með því að mig þyrstir ekki í að leita frekari upplýsinga? Hví ekki? Því ég hef fyrst og síðast áhuga á sjálfum mér, auk smáræðis áhuga á Vesturlöndum. Þetta er vissulega vandi, já, en vandi sem ekki verður leystur með því að hunsa hann.
Svo vinsamlegast miðið pantanir ykkar við þessa opinberun, héðan af.
Dagarnir eru verri en næturnar. En ægileg enduruppgötvun.
Pöntun óskast fyrir næsta blogg.
Einn og hálfur pakki á dag.
2 ummæli:
Sjáðu til, skarðið var lengi aðal leiðin á milli indlans og mið-vesturlanda. Þar hefur verið háð orrusta eftir orrustu í gegnum aldirnar á milli hindúa og múslíma. Svæðið liggur á mótum evrasíu flekans og indóástralíu flekans og eru jarðskjálftar því tíðir á svæðinu. Þarna hafa hlaðist upp miklir fjallgarðar og hafa harðgerir ættbálkar hafst þar við í gegnum aldirnar. Meðal þeirra má nefna ættbálk kenndan við Nuristan, væntanlega Nuristani, sem unnu sér það meðal annars til frægðar að leiða andstöðuna við innrásarheri Sovétríkjann. Hér er úr nægu efni að moða...
Næsta viðfangsefni: Gildi popplistar í tengslum við Walter Benjamin.
geturðu komið naflakuski að í næsta bloggi, held að lítið hafi verið rætt um það.
Skrifa ummæli