24.4.05

Fólk fullnafnað, bloggið línað, bærinn óbærilagður, framfarirnar lögmálaðar

Ég er á framfærslu lögmála.

Enginn Camus í dag – ég var á þeytingi … mögnuðum þeytingi um ferkílómetrann sem … aldeilis krefur mann um ýmislegt … hvernig lýsir maður 101 Reykjavík?

Ég byrjaði á Kaffi Hressó stuttu upp úr því að ég vaknaði, og settist niður til þýðingavinnu. Á Hressó starfar einhver myndarlegasti, karlmannlegasti og viðkunnanlegasti þjónn landsins … en þar fer líka fram, á laugardögum, að því er virðist, tilfinningatorgið. Í stjórn Elísabetar Jökulsdóttur. Sem steig á svið, þegar ég hafði þýtt í um klukkustund, og sagði frá tilfinningum sínum til þess að vera amma. Þær eru blendnar. Hún sagðist eiga það til, þegar hún hittir ömmubörnin sín, að reyna af full miklum móð og leggja langanir sjálfrar sín til hliðar, hún sagðist reyna að vera súperamma sem er ekki gott ef maður gleymir sjálfri sér. Á eftir henni steig á svið menntaskólanemi sem var heitt í hamsi vegna hugmynda um styttingu framhaldsskólanáms, hann sagði að ríkið ætti ekkert með að skipta sér af neinu, hann hefði fengið að velja hvort hann lyki sínu námi á þremur eða fjórum árum og þannig ætti það að vera um aldur og ævi, og hann ætti að fá að velja hvort hann læri latínu, kínversku eða japönsku, það komi engum við og einna síst ríkinu hvernig hann kýs að mennta sig. Þegar ég lokaði tölvunni minni og stóð upp til að borga kaffið var Elísabet aftur komin á svið og útskýrði á ensku fyrir ferðamönnum á kaffihúsinu að þeim væri líka afar velkomið að stíga á stokk og tjá tilfinningar sínar … þegar ég gekk út virtust útlendingarnir ekki myndu gera það en einn þeirra kallaði til Elísabetar að hún væri með fallega rödd og svo var ég – farinn!

Ég mun héðan af nefna þær manneskjur sem koma við sögu í blogginu mínu fullu nafni svo þær finni sjálfar sig á Google.

Ég ætlaði að setjast á Mokka kaffi til að vinna. En þar var fullt. Þá leit ég á Vegamót, þar var bæði fullt og skarkalað. Svo ég gekk áfram þar til ég rakst á Björn Kristjánsson, sem er gamall vinur minn og hverjum vex fallegasta skegg í heimi. Hann sagðist ætla á Alþjóðahúsið sjálfur til að vinna. Og færðist nú fjörið í aukana. Við settumst saman á Alþjóðahúsið og mér þýddist eins og í draumi á meðan Björn byrjaði að vinna að ritgerð um Beach Boys. Þegar mig tók loks að hungra, eftir að stúlka fékk að taka mynd af mér til að hafa mig á skrá yfir hugsanlega leikendur í auglýsingum, hvarum hafa mætti mörg orð, sagði Björn sem svo: Hvers vegna býð ég þér ekki í súpu heima hjá mér. Og við heimuðumst til hans og súpuðumst þar, honum eldaðist vel piltinum og mig saðnaði samkvæmt því.

Og hjá honum fékk ég gömlu melódikkuna mína til baka, sem ég vissi ekki hvar ég hefði gloprað niður.
Og ég uppgötvaði að ég hafði ekki greitt fyrir kaffið á kaffihúsinu en stolið kveikjara afgreiðslustúlkunnar og það þótti mér bæði vandræðalegt og gaman.
Og svo fórum við á listasýningu hjá honum Harrý Jóhannssyni, frænda mínum og kúrator.
Þá héldum við á Vegamót, hvert ég hafði áður litið og ekki litist á blikuna en hentaði nú betur.
Þar tók Egill Ólafsson okkur tali, söngvari … þeir þekkjast eitthvað … og þegar við loks yfirgáfum kaffihúsið sögðum við sem svo hvor við annan – og það er þá ágætt ef Egill rekst á sjálfan sig hér, skyldi hann nota Google og rekast á svona yfirleitt því yfirleitt er ég ekki hlynntur því að segja annað um fólk að því fjarverandi en viðstöddu –: helvíti er hann komplexaður. Því Egill tók sjálfur til máls um stöðnun og sagðist vera taóisti – að raunveruleiki lífsins væri endurtekning, en aðeins í eilífri endurtekningu hins sama sé framför og frelsi mögulegt. Svo vék hann talinu að Bretlandi, þar sem hann sagði fólk aðeins læst á einn kúltúr, sinn eiginn, og annan ekki, og því réðu gagnrýnendur í Bretlandi ekki við það að frá Íslandi kæmi annars konar músík en Björk. Jájá … vænsti kall en á einhverju verkefni ólokið. Segir völvan.

Loks hélt ég heim, hitti kærustuna mína á netinu, skæpaðist á við hana í rúma klukkustund og gott ef ekki varð úr heilt manifestó. Okkur manifestaðist.

Þá hélt ég út í sjoppu til að kaupa mér súkkulaði, til að súkkulaða mig, því mig hungraði aftur … en fékk óvart þúsund kalli of mikið til baka og pizzaði mig þá í leiðinni. Ég gæddist á því. Ég eða mér? Mér gæddist?

Ég var also ofþúsundkallaður er ég sjoppaði.

Ég lína fullmikið fyrir eiginn smekk … og nú línar allt þetta blogg … en það er þá vegna þess að í atburðunum miðjum, í þessari ólgu lífsins sem ég var, þrátt fyrir tíðindaleysi í hinu stærra samhengi, að lýsa, á ég bágt með að konsepta. Mér konseptast ekki úr þessu, í dag atburðaðist mér bara.

Borgin borgar, ég éga, Egill aglar, Björn bjössar … pizzan pizzaðist vel … nú bloggar bloggið, augun síga … svefninn migar.

Ágúst Borgþór og Eiríkur Örn Norðdahl – þetta er viðbótarefnisgrein til þess eins að þeir finni sjálfa sig.

23.4.05

Fræga folkið okkar Hermanns Stefanssonar

Jájá … einn ég sit og fiska eftir hnísum … hnýsum?

Niðdimm nótt, ég var að uppgötva Camus. Frekar seint í rassinn gripið, já, en ég er að lesa einhverja mögnuðustu bók lengi … Rebel eftir Camus. Gullfalleg. Ég fékk hana lánaða frá kunningja mínum og það er hættulegt því síðast þegar sá hinn sami lánaði öðrum vini bók festist sá vinur í þeirri bók og þeim höfundi í tíu ár og hefur varla spurst til hans síðan.

Veröldin er svo táknum hlaðin og maður er svo skíthræddur við að nefna þau. Lafandi skíthræddur er ég, já … fremur sakleysislegt, svosem, í gærkvöldi, símtalið sem ég fékk: Haukur, ég er á Sirkús og ég er með vegabréfið þitt. Þú skildir það eftir hérna í dag. Og saklaust að þegar ég gekk um bæinn í dag hitti ég eitt og annað fólk sem lét mig vita að vegabréfið mitt væri á Sirkús. Sakleysisleg táknræna að maður fái ekki að týna eða glata eða missa ídentitetið sitt í friði – sjálfsemdina eins og einhverjum þótti vel þýtt en ég hef efasemdir um.

Og þó er ég svo hræddur við táknrænuna umleikis mig að ég lagði ekki í að túlka söguna heldur lét Onicu það eftir í símtali …

Hitti í dag Rúnu, kærustu Múgísons sem ég var bálskotinn í þegar ég var níu ára. Sagði vinkonu minni það í strætó á leiðinni burt, frá Lækjartorgi upp á Hlemm þar sem hún fór út en ég hélt áfram lengra … vinkona mín var semsagt Kristín og hún er í hljómsveitinni múm en mér finnst alltaf vandræðalegt að nafngreina fólk þegar það er frægt, en það er náttúrulega ekki þverfótað fyrir frægu fólki í Reykjavík, eins og Hermann Stefánsson var að kvarta yfir, harla frægur maður sem ég hef aldrei hitt. Grunar samt að við séum samfeðra … jæja, ég hélt áfram, lengra, upp á Hótel Esju sem heitir núna Hotel Nordica, í atvinnuviðtal því mig dauðlangar að verða næturvörður og moka inn peningum, moka heilu fjallgarðana af peningum ofan í peningadalina mína djúpu … peningadalina sem Stephan G. orti um … ég fór upp á Hótel Esju og gekk einn hring í kringum hótelið áður en ég settist inn til að bíða því ég var kominn aðeins of snemma. Loks birtist stúlkan sem átti von á mér og heitir Anna, er sænsk og veit hvað hún er að gera.

Ég vissi líka hvað ég var að gera, eða áttaði mig á því þegar leið á viðtalið … ég var alfarið að klúðra viðtalinu, ég sat og fylgdist með sjálfum mér svara hverri spurningunni á fætur annarri innan rangrar orðræðu, því ég þekki ekki viðtöl, ég þekki bara umræður, sem Hermann Stefánsson hefur einmitt nýverið minnst á líka, ég kann ekki að víkja frá misvelheppnuðum umræðum um sósíal-pólitískan veruleika og þegar hún spurði mig, eftir að ég leit upp úr Camus, hvað mér þætti innifalið í hugtakinu „þjónusta“ sagði ég fyrst hið augljósa – rökgreiningin stakk upp kollinum og talaði: „Þjónusta er að uppfylla óskir annarra …“ en þá jók hún við spurninguna: „En hvað vilt þú, hvernig þjónustu vilt þú sjálfur njóta þegar þú ferð á veitingastað eða kaffihús …?“ –„Já,“ sagði ég, „nú þá vil ég að þjónninn sinni starfi sínu og uppfylli óskir mínar, en þó án þess að víkja af sviði hins mannlega, án þess að skarð komi í merkingarvefnaðinn á milli okkar, ég vil að hann geri það sem maður með mönnum svo að segja, eiginlega á forsendum sósíal-demókratíu.“ Henni, stúlkunni, Önnu, var hins vegar hvergi brugðið, hún sýndi ekki meiri viðbrögð við þessum fádæma illa ígrunduðu svörum mínum en hvert annað eyðublað, og spurði áfram: „Ertu vanur að segja sir eða ma'am í enda setninga á ensku?“

Nei, ég er víst ekki vanur að segja sir eða ma'am í enda enskra setninga … ég sem hélt að við værum öll saman í liði – að viðtalinu loknu stökk ég út í sólskinið, kátur sem kálfur, mér fannst svo gaman að hafa verið í aðstæðum þar sem ég rakst á óvænt sannindi um sjálfan mig, eða óvænta staðfestingu þess sem mig þegar grunaði … hefði í öllu falli mátt gruna … að þó ég væri ekki beinlínis í fílabeinsturni hefði ég ekki heldur fæturna á jörðinni … eða öllu heldur, hefði ég ekki heldur fæturna á glerinu … ég ætlaði að segjast ef til vill vera í lyftunni, fastur í lyftunni, en nú er mér nær að halda því fram að ég sé einmitt ráfandi um stræti og torg.

Ef ég fæ þetta starf, þetta ágæta og ágætlega launaða næturstarf, þetta forvitnilega starf, jafnvel, mun ég þó í öllu falli ekki hafa verið ráðinn af misgáningi eða á fölskum forsendum, heldur verður það sjálfur ég sem klæðist næturvarðarbúningnum, það verður ég, aðskotahluturinn í skandínavísku hönnuninni allri, ég verð jafnvel, sjálfur – ekki bara einhver leiður misskilningur um mig – fyllilega innlimaður í skandínavíska konseptið, við teygjum okkur saman eins og Adam og Guð í málverkinu sem hefur alltaf verið alls staðar, fingurgómarnir snertast og svo föllum við í faðma, sameinumst í eilífð hvítra súlna sem halda engu uppi, fjólublárra hægindastóla sem enginn sest í og glerja sem eru ekki gluggar.

Jájá. En þetta er semsagt, samkvæmt útgönguspám, ólíklegt.

Ákvarðanir hrannast upp, ákvarðanir um stefnumót mín við heiminn.

Á morgun verð ég meira konkret.

Faðir minn sagði mér að gömul vinkona mín, Eyrún Magnúsdóttir heitir hún og er nú önnur fræg manneskja, Kastljóssstjórnandi, hefði sagt í viðtali að Berlín væri eftirlætisborgin hennar af öllum í heiminum. Þá sagði ég honum að ég hefði einmitt rekist á Eyrúnu í Berlín, ári eftir að ég sagði upp á Morgunblaðinu, þar sem hún var þá stödd sem skiptiblaðamaður á tvöföldum launum ef ég man rétt en ég var í þann mund að selja myndavélina mína til að eiga fyrir fyrstu leigu. Ég sagði við pabba að það væri ekki það að ég vildi að neitt hefði farið öðruvísi, heldur væri sagan fremur markverð fyrir þessa tímapunkta þegar það slær mann að ákvarðanir í lífum hafa þeytt þeim í afar ólíkar áttir. Þetta væri dæmi um táknrænu sem ég fælist, sem ég er lafhræddur við, táknrænuna sem ég átti við í upphafi bloggsins, og hefur þá nú verið færð fram svo fólk, ég, geti hætt að skelfast.

Í millitíðinni getum við tekið saman fyrsta hluta ferlisins sem uppreisnarandinn ýtir úr vör í huga sem upphaflega er mettur af fáránleika og að því er virðist ófrjósemi heimsins. Í reynslu fáránleikans er þjáning einstaklingsbundin. En frá því augnabliki er uppreisnarhreyfing kemst af satð, virðist þjáningin sameiginleg reynsla. Þess vegna er fyrsta framfaraskref huga sem þyrmir yfir af undarleika hlutanna, að uppgötva að þessari upplifun undarleika deilir hann með öllum mönnum og að mannlegur veruleiki, í heild sinni, þjáist af fjarlægðinni sem skilur hann frá restinni af alheiminum. Krankleikinn sem stakur maður reynir verður að plágu. Í daglegum raunum okkar leikur uppreisn sama hlutverk og „cogito“-ið í umdæmi hugsunarinnar: hún er fyrsta sönnunargagnið. En þetta sönnunargagn læðir einstaklinginn fram úr einangrun hans. Það grundvallar fyrsta gildi mannkynsins. Ég geri uppreisn – þess vegna erum við.

Þetta var frá Camus, snörun mín.

Góða nótt, kæru viðföng og sjálfsverur, miðin eru köld, djúp og breið, djúp og breið,

H.

21.4.05

M … da!

Hér leit einhver við á dögunum og spurði hvort ég væri bundinn eða á lausu. Og ég svaraði með einhverjum hálfkæringi, en hver hefur tíma fyrir slíkt? Hver hefur tima til að fara eins og köttur kringum heitan eld, í nánd við sannleikann? Hver hefur tíma fyrir þögnina – við þurfum að tala og tala skýrt og segja það hreint út: Ég á kærustu. Ég á kærustu á Ítalíu. Ítalska kærustu á Ítalíu og hún er trúlega í þunglyndiskasti einmitt núna, því allir eru alltaf í þunglyndisköstum eða að þeim liggur við yfirliði.

Hún heitir Veronica en ég hef líka kallað hana Godot, þegar ég beið eftir henni, einu sinni, í Berlín, og Dódó þegar hún var komin og fannst hitt nafnið tilgerðarlegt. Hún er nefnilega kröfuhörð, hún Onica eins og er skemmtilegast að kalla hana og lætur engan komast upp með vitsmunalegan eða tilvistarlegan hálfkæring.

Tilvistarlegur hálfkæringur er ömurlegur, og hér talar maður sem hefur farið um víðan völl, um vörðulausa heiði – og nú verður hlé því mamma mín er komin í heimsókn.

---

Mamma kom og fór, ég ræddi við Veronicu og leit í mat til nágranna míns og heyrði helling af sögum. Mamma sagði mér morðsögur úr Reykjavík – menn voru víst alltaf að týnast hérna fyrir tuttugu, þrjátíu árum, týnast og svo hverfa, spor- og orðalaust. Geirfinnsmálið segir mamma mér að hafi verið fyrsta dæmið um að veður væri gert úr slíku … Veronica sagði mér sögu af ástaryfirlýsingu frá því í gær, menn eru alltaf að játa ást sína fyrir henni því hún er svo falleg og greind … skörp er jafnvel hið hárrétta orð. Og gærkvöldið var semsagt ekki undantekning þar á, vinur hennar sagðist hafa varið síðustu mánuðum í pilluát til að lifa það af að vera án hennar, á meðan hún dvaldist með mér í Berlín. Þetta var á afmælisdaginn hans, þau fóru saman út að borða … þriðji sagnaflokkurinn kom frá húsverðinum mínum, sem ég vissi ekki að væri hálf-amerísk-ítalskur, ég vissi ekki að pabbi hans hefði sagt skilið við starf sem kúrator í Guggenheimsafninu í New York til að flytjast í Mosfellsdal og hefja tómata-, síðar vínrækt.

Þetta var hollur sagnabálkur.

Djöfull er erfitt að lifa. Eða slungið. Flókið? Ég stend frammi fyrir ákvörðunum, eins og ég minntist á hér áðan þekki ég vel til uppi á heiði þar sem allt er stefnulaust ráf, hvernig kemst maður niður af fjallinu til byggða? Ég hef tíðindi að færa … ég hef gengið um með vasaljós og leitað að Guði, hann er ekki á vegaleysunum, ég vil komast á mislæg gatnamót á hraðskreiðum kagga, því fari maður um mislæg gatnamót á hraðskreiðum kagga kemst maður ekki hjá þvi að rata eða villast í einhverja tiltekna átt. Vegir liggja nefnilega fyrst og fremst til átta, heiðarnar liggja ekki um neitt nema sjálfar sig og mosi er ekki áhugaverður nema svo og svo lengi.

Þetta voru skipatíðindin í dag. Ef einhver lesenda minna er menntaður í lacanískri sálgreiningu bið ég hann að láta vita hvort hann heyri gegnum orð mín hvort ég er sáttur eða ósáttur við ástarsambandið mitt, hvort það liggi Shakespeare sonnetta eða óp frá Munch á milli línanna.

14.4.05

Af raunvisindum …

Konur velja varkára karla

Ungir karlmenn, sem halda að leiðin að hjarta konunnar sé að aka hratt eða fara í teygjustökk, vaða í villu og svima og ættu heldur að byrja að huga að viðbótarlífeyrissparnaði. Ný rannsókn sýnir nefnilega, að stúlkur kjósa frekar karlmenn sem fara að öllu með gát.

Þessi niðurstaða stríðir gegn þeirri kenningu, að karlar sem sýna styrk og hugrekki séu að sýna fram á að þeir séu vel úr garði gerðir og því heppilegir makar. Sú kenning passar vel við þá staðreynd, að ungir karlmenn taka almennt meiri áhættu en þeir sem orðnir eru eldri.

En vísindamenn hjá háskólanum í Maine í Bandaríkjunum gerði könnun með þátttöku 48 ungra karlmanna og 52 ungra kvenna þar sem niðurstaðan var að konur kusu frekar varkára karla.

„Karlarnir héldu að konur yrðu hrifnar af glannaskap en konurnar vildu frekar varkára menn," segir í grein, sem vísindamennirnir skrifa í tímaritið Science. „Þeir einu, sem urðu hrifnir, voru aðrir karlmenn."

Sé það tilfellið gæti önnur kenning skýrt þá þversögn sem niðurstaða könnunarinnar virðist leiða í ljós: Með því að taka áhættu, og öðlast þannig aðdáun annarra karlmanna, hækki þjóðfélagsleg staða þess sem áhættuna tekur og það kunni að hafa jákvæð áhrif á konur.

– mbl.is.

---

Sýndi tvö myndbönd í kvöld á tónleikum … annað vakti takmarkaða hrifningu, hitt enga. Mér stóð nokk á sama … en þetta var dáldið fyndið … seinna myndbandið hélt athygli áhorfenda svo illa að enginn virtist taka eftir því að það kláraðist. Þó er í því hárbeitt og meinfyndin samfélagsádeila … svín og perlur, ha?

Hm … Róm, Berlín, Reykjavík … hm … hvar er best að búa? Ég fór á vinnumiðlun í dag vegna næturvarðarstarfs sem reyndist þegar vera skipað, en þegar ég sagði vinnumiðlaranum að ég myndi síðar meir leita að starfi í Róm taldi hann upp af skjánum sinum störf á Spáni og Kýpur … Nei, Róm, endurtók ég, ég er ekki að fara hvert sem er, ég er að fara til Rómar. Já, hér er eitthvað í Marseille, hélt hann áfram. Stórmerkilegt. Er samsvörun á milli hans og áhorfenda minna í kvöld? Á ég að læra eitthvað af þessu?

Rómirómi … I roam, therefore I am.

6.4.05

Homo

Mér hefur borist til eyrna að endrum og eins sendi ég undarleg tölvuskeyti til ólíklegustu manna, sem yfirleitt séu í fimm liðum og umræddir ólíkindamenn standi eftir gáttaðir, tölvuskeytið sé sem þruma úr heiðskýru lofti, jafn óvænt og illtúlkanlegt. Þetta getur vel staðist.

I came in from the wilderness, a creature void of form – come in, she said, I'll give ya, shelter from the storm.

Komdu inn kæri, hjá mér máttu skýla þér. Reyndu að gera þér stað í hugarlund þar sem þér er óhult og alltaf hlýtt – komdu í Kringluna, kæri, hættu að kúldrast þetta bakvið fjörusteina …

er ekki til sála á Íslandi sem er svo helguð ákveðnum málstað eða hópi að hún fórni örðu af eiginhagsmunum í þess þágu?

Stendur sú eina hetjulund eftir að beygja sig glottandi? Það er greinarmunur sem raunverulega skilur að þá Megas og Bubba – Megas beygir sig glottandi, Bubbi beygir sig beygur. Þetta er raunverulegur munur … en fjandinn …

fjandinn sjálfur.

Ég hef verið að þýða texta eftir Slóvenann Slavoj Zizek. Hann lýkur einni bók sinni á spurningunni, sem er með rentu spurning allra andófsmanna í dag: Hvernig byltir maður kerfi sem stöðugt byltir sjálfu sér? En að baki þessari spurningu býr önnur sem er sjaldnar spurt en vofir yfir, hún er veðrið sjálft þessa dagana: Er ástæða til að bylta kerfi sem stöðugt byltir sjálfu sér?

Er kannski einfaldlega allt í lagi?

Er jafnvel Íraksstríðið bara ágætt? Er George W. Bush og ríkisstjórn hans einfaldlega áræðnari og betur upp lögð til að bylta heiminum en vel meinandi andófsmenn allra landa? Skilur þar á milli sauðanna og hafranna að þeir þora að dreifa ást og frelsi með báli og brandi?

All babies are born into great pain …

ef til vill ættum við að gefa meiri gaum að þeim lögum sem tónlistarmenn hafa ekki gefið út, því þau eru of léleg … líkt og ósend sms-skilaboð og ósend tölvuskeyti kunna að segja ýmislegt merkilegra um bréfritara en hitt sem berst og heyrist.

Já, einmitt núna, þessa klukkustundina, er ég hinn ómarkvissi maður. Það mun brá af mér um eða upp úr kvöldmat.

India, India, take me to your heart.

31.3.05

Erlendir ferðamenn fundust á lífi á Niaseyju

Ellefu erlendir ferðamenn, sem saknað var á Niaseyju í Indónesíu eftir jarðskjálftann við Súmötru á mánudag, fundust á lífi í morgun. Fólkið hafði lokast inni á strönd, sem er vinsæl meðal brimbrettamanna. Um er að ræða tvo Svía, þrjá Breta, tvo Kanadamenn, tvo Frakka, Bandaríkjamann og Þjóðverja.

Af mbl.is - ætli þeir pólrétti ekki fyrirsögnina fyrir prentútgáfuna. Í millitíðinni má ljóða þetta ... ljóðið gæti heitið G5 og Ikea:

Ellefu erlendir ferðamenn
sem saknað var á Niaseyju í Indónesíu
eftir jarðskjálftann við Súmötru á mánudag
fundust á lífi í morgun.

Fólkið hafði lokast inni á strönd
sem er vinsæl meðal brimbrettamanna.
Um er að ræða
tvo Svía,
þrjá Breta,
tvo Kanadamenn,
tvo Frakka,
Bandaríkjamann
og Þjóðverja.

Eða það mætti gera þraut úr þessu í Barnablaði Nýhils: Finnið villuna.

Ósamræmi er á milli texta blaðsins og þess sem forsvarsmenn þess og lesendur telja sig hafa fyrir siðferðissjónarmið. Finnið villuna og sendið rétt svar til ...

Loks má skrifa ritstjórninni bréf ... en how many roads, baby?

Er annars á leið til Íslands, flýg á föstudag, lendi á laugardag, hlakka mikið til og er í þokkabót fullur af trega.