31.3.05

Erlendir ferðamenn fundust á lífi á Niaseyju

Ellefu erlendir ferðamenn, sem saknað var á Niaseyju í Indónesíu eftir jarðskjálftann við Súmötru á mánudag, fundust á lífi í morgun. Fólkið hafði lokast inni á strönd, sem er vinsæl meðal brimbrettamanna. Um er að ræða tvo Svía, þrjá Breta, tvo Kanadamenn, tvo Frakka, Bandaríkjamann og Þjóðverja.

Af mbl.is - ætli þeir pólrétti ekki fyrirsögnina fyrir prentútgáfuna. Í millitíðinni má ljóða þetta ... ljóðið gæti heitið G5 og Ikea:

Ellefu erlendir ferðamenn
sem saknað var á Niaseyju í Indónesíu
eftir jarðskjálftann við Súmötru á mánudag
fundust á lífi í morgun.

Fólkið hafði lokast inni á strönd
sem er vinsæl meðal brimbrettamanna.
Um er að ræða
tvo Svía,
þrjá Breta,
tvo Kanadamenn,
tvo Frakka,
Bandaríkjamann
og Þjóðverja.

Eða það mætti gera þraut úr þessu í Barnablaði Nýhils: Finnið villuna.

Ósamræmi er á milli texta blaðsins og þess sem forsvarsmenn þess og lesendur telja sig hafa fyrir siðferðissjónarmið. Finnið villuna og sendið rétt svar til ...

Loks má skrifa ritstjórninni bréf ... en how many roads, baby?

Er annars á leið til Íslands, flýg á föstudag, lendi á laugardag, hlakka mikið til og er í þokkabót fullur af trega.

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ertu enn á lausu?

Haukur Már sagði...

Kitlandi spurning … hver spyr og meinar hvað?

Nafnlaus sagði...

Þú barst á góma á Aldrei fór ég suður- hátíðinni og fyrir tilviljun fann ég heimasíðuna þína. Ef þú ert sá Haukur... Tenglar Silfur Egils - Eiríkur nokkur - og svo þú, og gettu nú. Segi bara Gunni. ;)

Haukur Már sagði...

Er þetta sá hinn sami anónýmus og spurði mig hvort ég væri á lausu og er hann þá – tengdur Gunnari eða Gunnar sjálfur – að gefa sjálfsemd sína til kynna með augngotum undan höfuðklút, eða er þetta allt annar maður – Gunnar eða ekki Gunnar – að því er hann best veit ótengdur spurningunni um lausastöðu hvalveiðimanna?

Hvalarinn er bundinn, bæði skuldbundinn og eiðbundinn ýmsu … öðru ekki.

Nafnlaus sagði...

Svo þú ert bundinn - en ekki heitbundinn?

Nafnlaus sagði...

Annars var ég sammála kommentinu þínu á fréttinni ... gagnrýndi það meira að segja í vinnunni -
og ég er sú sama aftur... Anonymous