25.6.07

Úr fréttabréfi aðdáendaklúbbsins:

költskot.jpg

Nýhil og Nykur. Ég hélt við værum óvinagengi? Ha, djöfull eruð þið væmnir, strákar! Nykur fnykur!

Ekki vissi ég að ég væri að fara að taka þátt í svona vitleysu. Jæja, hér er ljóð til Hermanns – ég hef annars sagt skilið við fagurfræði ljótleikans, hún er fagurfræði líka, mér sýnist heillavænlegast að tala bara skýrt og skorinort í kveðskap, skrifa því sem næst eins og Wittgenstein:


Það er ekki að konurnar séu betri skáld, Hermann.

Þetta er bara orðið kvenlegt fag,

nostursamleg umönnun smáatriða,

við erum kvennastétt.


Fyrir framan mig er breiða af biðukollustönglum,

gráa hárið er fokið af þeim,

bjálfalegir bíða þeir haustsins

eða unglingsins með sláttuorfið.


Ég krýp með þeim,

mæni og dunda mér

slíkt erindisleysi er

ásættanlegra í fari kvenna.


Afsakið þessa Einars Más línu þarna í enda annars erindis, unglingurinn með sláttuorfið var bara of freistandi til að skilja hann eftir, ég tek hann burt ef þetta skyldi nokkurn tíma birtast aftur, breyti honum  í „unglingavinnuna“ eða eitthvað aðeins fínlegra …

Hér er semsagt bloggið hans Hermanns, sem hann fjarlægði víst af sinni síðu en Þórdís Gísladóttir var svona forsjál að nappa. Efasemdirnar vöknuðu kringum Reykvískt eðalefni, sem sannarlega er dúndur – en það var bæði Hannes, nóttin er blá mamma, og Litli kall strikes again, á hér um bil einmitt sama hátt. Ég held hins vegar að Hermann sé ekki einn í liði, þetta er vandræðalegt fag fyrir karlmenn. Eins og Hannes Hólmsteinn orðaði það í grein í vikuriti um peninga sem ég held að hafi aðeins komið út einu sinni, líta nú íslensk börn og unglingar upp til auðmanna eins og þau áður litu upp til skálda og listamanna. Og eins og karlmódel nokkurt orti ljóðabók um, þá kæra kvenmódel sig ekki um karlmódel, heldur vilja þær ljósmyndara eða útgefendur.

Já, þetta er svona módelbransi. Svona sálnamódelbransi eins og Kierkegaard orðaði það.

En krakkar, passið ykkur á költinu!

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég var að hanna nýjan blómakrans á hausinn þinn, dúllídúll.
Kv. Stína

Nafnlaus sagði...

ég ætla að hafa mikið af BRENNINETLUM

Haukur Már sagði...

Ha?

Nafnlaus sagði...

konur eitra, karlmenn skjóta, samkvæmt hefðinni, arseníkið er besti vinur konunnar, hundur og byssa kallsins, að ræða kynjamun varðandi gæði er vafasamt, Hermann og Haukur, er einhver satýra sem fer framhjá mér, útskýrið takk.

Stína

Nafnlaus sagði...

dumb it down, please, næessuiggi.