
Og á meðan ég man, þessi maður er fremstur í röð við Apple búðina í New York þar sem fólk bíður þess að nýi síminn komi í verslanir. Hann leitar eftir stuðningi, fjárhagslegum og andlegum, í biðinni. Hann hefur sýnt ótrúlegt þolgæði.
Látum okkur sjá, það var eitthvað fleira. Já, þessi frétt birtist á mbl.is fyrir nokkrum dögum. Hefði ekki getað skrifað hana betur sjálfur:
„Vefsíða Banana ehf hefur orðið fyrir árás tölvuþrjóta eða svo kallaðra hakkara og undanfarnar tvær vikur hafa komið upp skilaboð á tyrknesku í stað upplýsinga um ágæti ávaxta. Hjá Banönum ehf fengust þær upplýsingar að vefsíðustjórinn þeirra væri í fríi erlendis og að heimasíðan hefði ekki verið mjög öflug til þessa en að til stæði að breyta því í næstu viku.
Hin hakkaða síða sýnir kort af Tyrklandi þar sem búið er að stækka landamærin vel út yfir hin raunverulegu landamæri með skilaboðunum Büyük Türk sem útleggja mætti sem Stærra Tyrkland á Íslensku en ekki er ljóst hvort um grínista sem brjótast inn á heimasíður sér til dægrastyttingar eða hvort um raunverulega tyrkneska þjóðernissinna er að ræða.“
Engin ummæli:
Skrifa ummæli