17.6.07

Fögnuður


Mörg þúsund manns eru nú samankomin í miðbæ Reykjavíkur til að fagna þjóðhátíðardegi landsmanna, segja þeir og birta þessa mynd með máli sínu til staðfestingar. Hýpótesa 1: orð sem birtast í fjölmiðlum eiga engin vensl við heiminn utan fjölmiðlanna, hvað þá heiminn utan orðanna, ef við gerumst svo djörf …

Legg til að deilur Umberto Ecos og Pier Paolo Pasolinis um grundvöll semíólógíu og mál kvikmyndarinnar verði endurbirt í Morgunblaðinu á upprunalegum hraða. Ég skal vera Pasolini ef Hemmi Stef verður Eco. Engin ástæða að stofna til nýrrar deilu, það á þegar eftir að flytja inn mörg af bestu körpum 20. aldar.

1 ummæli:

Hrólfur S. sagði...

Pasolini var eldri en Eco svo þetta ætti eiginlega að vera öfugt.