Nýtt DV er komið út. Í Lesbók. Hermann Stefánsson blaðamaður afhjúpar sannleikann um Eirík Örn Norðdahl: Í raun réttri hefur Eiríkur stundum rifið kjaft á undanförnum árum. Í ofanálag er ekkert ypsilon í hil. Missið ekki af þessu!
Eruð þið ekki annars báðir að vestan? Hvernig væri að nota bara hnefana, Hermann? Væri það ekki í öllu falli merkingarbærara?
2 ummæli:
Tja. Ég er reyndar mest að norðan en kallarnir sem ég járnabatt með fyrir nokkrum árum voru af Hornströndum og lögðu þetta líka stundum til í glensi. Í rauninni voru þeir þó meira gefnir fyrir skynsamlegar samræður eins og ég. bkv hs
Ekkert stríð! - og ég sem var farinn að hlakka til að sjá hvert nyhil-verkið af öðru tekið fyrir, greint og rústað. Greinin fjallar um viðbrögð og tilsvör eins meðlims hópsins við gagnrýni. Vissulega getur Eiríkur stuðað en má hann ekki vera hann sjálfur? Er HS að fara fram á að höfundar Nyhil sýni gagnrýni og allri umfjöllun um verk þeirra staðlaða virðingu skv. forskrift, ellegar sé öll marktæk umræða um bókmenntir í húfi?! Undarleg krafa gerð til höfunda og skrítið samhengi. Enn undarlegri er niðurstaða greinarhöfundar um verk
hópsins í heild útfrá stuði Eiríks. Órökstudd vindhögg, og ekkert stríð...
Skrifa ummæli