Orð dagsins er enantiomer - handhverfa, á íslensku. Hugtakið virðist mér vísa til annars helmings sameindar sem er samhverf, það er "hægri" hlið speglar þá "vinstri", en þó ekki fullkomlega - að því tilskildu um leið að önnur hliðin beri í sér vetnisfrumeind. Ég sel þetta þó ekki dýrar en ég keypti það, en gengið er tvær mínútur á google. Sem færði mér líka þessa fallegu skýringarmynd hér að ofan, sem teiknuð var í árdaga nútímavísinda ... jæja, kringum þarsíðustu aldamót, af andlega sinnuðum efnafræðingum sem sögðust sjá atóm.
Ég er annars að þýða hernaðarleyndarmál og get ekki farið nánar út í þá sálma að svo stöddu máli.
1 ummæli:
Getur það verið að "handhverfa" hafi eitthvað með handhverfu mína til vinstri og hægri að gera?
Ég er ekki örvhent... í þeirri merkingu, en ég er örvhent á spil, ég er örvhent þegar ég legg kapal..hvað er þetta með örvhendu og handhverfu? Hvað er átt við?
Skrifa ummæli