31.5.07

Náttúra, menning, framtíð

Lækjareiningar fást hér. Flúðir, starteiningar, smágil hægri og smágil til vinstri, yfirhangandi syllur, djúp gil til hægri og vinstri eða þá djúp gil með flúðum. Og ætti þá enginn að þurfa að gráta Kárahnjúka. Hver eining virðist ekki kosta nema 20-30 þúsund krónur. Á sama stað má fá glæsilega gervisteina í mörgum litum, stærðum og gerðum.

Ég er annars að undirbúa eigin fermingu. Það er tímabært að komast í fullorðinna manna tölu, sumar ástarinnar í þann mund að hefjast og allt hvaðeina. Ef Brissó getur krýnt sjálfa sig fegurðardrottningu get ég í það minnsta fermt mig. Athöfnin mun fara fram í kyrrþey. Lækjareiningar afþakkaðar.

Veit annars einhver hvað tekur við þegar búið er að gera upp og hækka leiguna á síðasta íbúðarhúsinu í Berlín? Fyrir þremur árum heyrði ég að panevrópska ræflasenan væri öll á leiðinni til Azerba(ídsj)zan – en mér sýnist lítið hafa þokast í þá átt. Endilega látið mig vita, ég er svo illa inni í málum hérna í Vesturbænum, en þarf að huga að framtíðinni.

Engin ummæli: