Já. He. Ætli Jón H. B. Snorrason svari greininni minni? Á barnum í gær hitti ég konu sem var að ljúka við doktorsritgerð í sagnfræði og sagði „ekki það að ég líti á sjálfa mig sem rasista, en ég fann, þegar ég gekk fram hjá þessu fólki á Laugaveginum, að …“. Og ég hitti lögfræðimenntaða stúlku með býsna falleg augu sem vinnur hjá löggunni og neitaði kæruleysislega að hafa nokkurt álit á lögmæti harmónikkuaðgerðarinnar. Ég sá fólk hverfa inn á klósett til að fá sér í nefið eins og ekkert hefði í skorist. Ég varð ekki var við að mörgum þætti þeir staddir í myndinni Cabaret.
Ég fór annars út í sveit í fyrradag og las gestabók í húsi þar sem allir fyrri gestir virðast hafa verið smalar og fjallkóngurinn á leiðinni. „Hér eru 18 manns, ein Toyota og 15 hestar, við leit í 3. safni. 1 tvílemba fannst ofan við Heiðargil undir Markarlóni, frá Böðvari á Neðra. Önnur frá Einari Kalda á Húsavöllum náðist undir Kvísl. Undir Kletti segjast drengirnir hafa séð lamb, eitt á ferð, en náðist ekki í þetta sinn. Ef til vill eru þeir að stríða okkur.“ Ekki að ég muni örnefni, en ég hafði enga grein gert mér fyrir vinnunni á bakvið þetta kjöt. Frá sjónarmiði markaðar (og ég meina Markaðar) getur ekki verið að þetta borgi sig, frekar en að selja ljóðabækur á börum – bændur fengju áreiðanlega langtum hærra tímakaup við, til dæmis, að spila póker á Netinu.
Kindur eru hannaðar til slátrunar og virðist fyrsta kindin hafa verið alin í Írak um 9000 fyrir Krist. Þannig var það trúlega uppfinningasemi í Mið-Austurlöndum sem gerði Ísland byggilegt, til að byrja með – síðar tók kartaflan við, indíanísk hönnun. Flatkaka með reyktum laxi, osti, pestó og tómatsneið er helsta framlag Íslendinga til matarmenningar heimsins, enn sem komið er. Og croissant-samloka með súkkulaðimjúkís, white-trash eftirréttur sumars ástarinnar 2007 – sem raunar, vel að merkja, hófst eiginlega í gær. Þetta eru allt síðari tíma uppfinningar og enn hefur ekki reynt á hvort þær haldi lífinu í þjóðflokkum eða heimsálfum þegar kreppir í álinn. Til dæmis þegar Kínverjarnir koma:
„Ef þið komist til valda þá neyðist ég til að fresta! Frekari barneignum, húsnæðiskaupum, bílakaupum, ferðalögum, leggja fyrir fé, og hugsanlega verður þetta svo erfitt að ég og frúin neyðumst til að fresta giftingu. Ykkar stefna er niðurrifstefna, hvernig er það hægt að boða stöðvun í atvinnuuppbyggingarmálum ? og koma ekki upp með neitt í staðinn??? hvernig er hægt að styðja slíkt? Þið boðið enga uppbyggingu í landinu heldur vaxandi atvinnuleysi, fólksflótta og fer sem fer, gjaldþrot einstaklinga og fyrirtækja sem blasir við!! Já eymd er valkostur ! ef þú merkir x við vg. ertu búinn að kjósa yfir þig eymd.. Hvernig getið þið verið örugg um að friðurinn haldist í heiminum? Höfum við efni á því að að ganga út frá því vísu? Efnahagur Bandaríkjanna er í molum, Kínverjar styrkjast með degi hverjum og við má bæta að kínverjar eru stæðsti framleiðandi amfetamíns og methadons sem er að eyðileggja æsku vestranna landa, í kína liggur við dauðarefsing gerist kínverji sekur um neyslu eða sölu efnanna, en þeir leyfa framleiðslu og útfluttning á efnunum til þess að skaða vestrænar þjóðir. Hvernig höfum við efni á því að segja stopp við uppbyggingu, meiri atvinnu og betri kjörum? VG er ekki góður kostur...“
bendir Ljónas okkur á, í athugasemdakerfi Vísis. Takk, Ljónas.
Að síðustu: skv. Wikipediu, miðlinum eina, risu deilur árið 2004, þegar rannsóknahópur í Oregon virtist ásetja sér að útrýma samkynhneigð meðal hrúta, með genafikti. Rannsóknahópurinn bar þessar ásakanir af sér, sagðist aðeins hafa verið forvitinn um að finna genið, en ekki ásett sér að „lækna“ hrútana.
Boðskapurinn? Harmonikkumafían, Kínverjarnir, Múslimarnir, Sígaunarnir, Vinstri grænir, dópsalar, samkynhneigðir hrútar og ég erum saman í liði, og ætlum okkur ekki bara að grafa undan efnahag og stöðugleika, heldur öllum þeim gildum sem þetta samfélag hvílir á. Passið ykkur!
Nú er ljóst að þeir sem hafa raunveruleg völd þurfa ekki að tala. Stjórnmálamenn eru með á Moggablogginu, bankastjórar ekki. Ljónas á síðasta orð þessarar morgunhugvekju, í boði frestunaráráttu minnar:
„Helvítis hundasúrusmjattandi hippar með blóm í hárinu og botox í andlitinu, hangandi inná á maður lifandi með alla yfirdrætti í hámarki og búið að hirða aleiguna af vinum og vandamönnum með því að fá undirskriftir á allskyns skuldarbréf og víxla.“
Og hann á líka allra síðasta orðið, en hér hittir hann naglann á höfuðið, sér einmitt sömu staðreyndir blasa við og Hegelistarnir sem eiga erfitt með að kjósa nokkuð af ástríðu um þessar mundir:
„Viljið þið drepa niður allt sem heitir frumkvæði og nýsköpun í okkar góða þjóðfélagi?? Þú skalt nú ath. það þú grunnhyggni Rómverji að peningar eru mjög kvikir, þeir sem eiga peninganna og eru að velta miklu fé flytja þá bara út finni þeir að öryggi þeirra sé ógnað. Ég hef talað við mjög marga peningamenn uppá síðkastið sem segja að ef við fáum hér vinstri stjórn þá munu fletir koma fé sínu úr landi sem fyrst og hefja starfsemi annarstaðar í heiminum, enda blasa ótal tækifæri við mönnum mjög víða í evrópu. Bæði Samfylkingin og VG eru ekki betur að sér en þetta að þau halda að þau hafi þessa hópa í hendi sér, hlutabréf munu svo sannarlega hrapa + Krónan . Gerið ykkur enga grein fyrir því að hér liggja hundurðir miljarða krónubréf sem tikka hér á vaxtamismun, ég þekki menn sem eru að búa sig undir það versta og eru farnir að undirbúa lokun samninga, gætið að því að það þarf ekki að loka öllum samningum til að okkar litla hagkerfi brenni bókstaflega yfir og þetta er mjög sorgleg staðreynd að hér eru hugsanlega flokkar að komast til valda sem hafa það á sinni stefnuskrá að slökkva bara ljósin, gefa allt almannafé og það fé sem þau hafa ekki tök á að gefa þau hafa einfaldlega hótað að hræða það af landi brott! (Ögmundur Jónasson) Þetta liggur bara í augum uppi! Verktakar sem hafa fjárfest fyrir milljarða í lóðum munu jafnvel tapa öllu sínu! Finnst þér það fyndið kanski? Mér og fjölmörgum sem ég þekki finnst þið ekki hafa neina hugmynd um hvað er í húfi og þarna kemur máltækið góða "engin veit hvað hann hefur átt fyrr en misst hefur"“
Engin ummæli:
Skrifa ummæli