7.5.07

Ertekkaðfökkíngdjókímér?

Sama dag og þetta Fagnaðarefni birtist flytur RÚV ógeðfelld tíðindi:
„Tveir hópar rúmenskra ríkisborgara, átta og ellefu manna, sem dvalið hafa í miðborg Reykjavíkur að undanförnu fara úr landi í dag. Þetta munu vera 17 karlmenn og 2 konur, en engin börn.

Fólkið kom frá Ósló og Kaupmannahöfn. Jón H B Snorrason, varalögreglustjóri í Reykjavík, segir að kvartanir hafi borist frá verslunareigendum vegna fólksins sem betlað hafi við verslanir.

Fólkið hefur verið hér um skamma hríð, nokkrir áttu farmiða heim, aðrir eru algjörlega peningalausir. Undir þá var borgað en engum var vísað úr landi þótt lagaskilyrði hafi verið til þess, m.a. þar sem annar hópurinn viðurkenndi að hafa ætlað að vinna hér svart, það er á tilskilinna leyfa, segir Jón H B Snorrason.“

Þeim var ekki vísað úr landi. Þeim var bara sagt að fara. Og borgað undir þá flug. Hver þarf Frjálslynda flokkinn þegar hann á efnahagsafbrotadeild lögreglunnar?

Nýríkum Íslendingum finnst efnalitlir óþolandi, fátækir til ónæðis og skammar. Skiljanlega, þeir hafa engan smekk fyrir rakspíra. Skiljanlega fögnuðu menn þegar Kebabbúllan brann og það er líka ósköp skiljanlegt að menn vilji ekki hafa betlandi harmóníkkuleikara á götunum þegar Elton John ætlar að taka lagið yfir kvöldkaffinu þeirra.

Hvað er að ykkur, hálfvitarnir ykkar!? Og hvern ávarpa ég? Hvaða andlit hefur þetta afl? Jón H B Snorrason? Hringir maður í hann til að hvæsa? Sennilega var „engum vísað úr landi“ einmitt til að sneiða fram hjá mannréttindabroti, sennilega þyrfti dáldið gott lögfræðingateymi til að skjalfesta að nokkuð hafi einu sinni gerst.

Nei, þetta er ekki fyndið, þetta er ógeðslegt. Og það sem kosningaumræða síðustu vikna hefði átt að snúast um er einmitt þetta ógeð. Það er eitthvað langtum djúpstæðara en tannvernd – djúpstæðara og raunverulegra. Framtíðarhorfur samfélags ráðast af gildunum sem það ræktar. Okkar dagar vita einfaldlega ekki á gott. Allt í einu finnst mér að ég hefði átt að vera að segja eitthvað síðustu vikur – hvers vegna er svona erfitt að finna snertiflöt við kosningar? Hvers vegna er ekki pólitík í stjórnmálum, þegar öll önnur svið mannlífsins eru gegnsósa af henni?

Ha … jæja, við getum fundið Rúmenana, beðið þá afsökunar og boðið þá velkomna aftur eftir fjögur ár. Það verður áreiðanlega forgangsverkefni vinstri flokkanna eftir jafn áreiðanlega glæstan kosningasigur.


---
Kl. 14:23 var bætt aftan við texta fréttarinnar: „Þetta fólk hafi ekki haft möguleika á að framfleyta sér í Reykjavík og hafi sofið í almenningsgörðum.“ Nú er fyrri hluti málsgreinarinnar augljós lygi, því ég horfði á tónlistarmennina framfleyta sér. Síðari hlutanum er sjálfsagt ætlað útskýringar- ef ekki réttlætingarvægi: annars vegar er ekki prýði að því að fólk sofi í görðunum í borginni, við vitum öll að þeir eiga helst að vera tómir, hins vegar hlýtur það að vera fólkinu fyrir bestu að við sendum það burt, svo það geti þá sofið í hlýrri görðum annars staðar.
---
Þá hermir mbl.is: „Sagt var að lögreglu gruni að fólkið hafi verið undanfarar glæpahópa.“ Og að auki: „Ábendingar hafi borist frá Norðurlöndunum, að sambærilegir flokkar fari þar um og séu undanfarar stærri hópa, sem hyggist stunda óleyfilega starfsemi.“ Umorðað: Á Norðurlöndunum eru menn með fordóma fyrir sígaunum. Við ákváðum að rétt væri að taka þá upp líka.
---
Kl. 16:14 bætir mbl.is við sínar fréttir: „Lögreglan segir, að fólkið haldi af landi brott í dag og fari héðan sjálfviljugt en hópurinn telur alls 21 einstakling, bæði karla og konur og eitt barn.“ Hvernig var vilji fólksins leiddur í ljós? „Tæplega helmingur hóps Rúmena, sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur haft afskipti af, kom til landsins í gær en hinir hafa dvalið hér á landi í nokkra daga,“ segir líka í fréttinni – hvað var það sem fólkið skildi ekki um eigin langanir í gær en lærðist í dag?
---

Engin ummæli: