Ég var ekki með myndavél á mér þegar ég gekk fram hjá Melabúðinni fyrir tveimur dögum og hlustaði á tvær ljóshærðar ungar stúlkur, stúlkur á tombólualdri, leika á fiðlu fyrir neytendur og aðra vegfarendur, með fiðlukassa fyrir framan sig, þar sem hafði safnast nokkurt klink. Þær voru svaka klárar og allt það en lífsreyndum atvinnugötuspilurum frá Rúmeníu myndi þó leyfast að kalla austurþjóðlegu Bela Bartok stefin sem þær fluttu óttalegt sarg. Þar sem ekki hefur spurst til þeirra í fréttum tókst þeim sennilega að hypja sig áður en lögreglan kom á vettvang. Fela sig trúlega undir vel völdum bekk í Hljómskálagarðinum á næturna, nartandi í klinkið sitt.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli