Hið ógnvænlega við sjálfsmorðsárásarmenn er ekki að þeir drepi fólk, það eru allir að gera um þessar mundir, hið ógnvænlega við sjálfsmorðsárásarmenn, í hugum vestrænna áhorfenda, er að þeir drepa sjálfa sig. Hratt og örugglega, ólíkt reykingamönnum sem vekja nokkurn ugg hjá fólki en geta þó aldrei verið vissir um að deyja auk þess sem sígarettur ku veita einhvers konar nautn – „Hvað gengur manninum til? Hvað fær hann út úr þessu?“ er upphrópun manns sem heyrir af sjálfsmorðsárás í fyrsta sinn.
Þetta með reykingamanninn er ekki bara lélegur brandari, heldur myndi 'sjálfsmorðsárásarhneigð' meðal vesturlandabúa helst falla undir áráttuhegðun. Allt sem miðar ekki að nautn má skilgreina sem sálræna sjúkdóma á Vesturlöndum. Hvernig á samfélag nautnarinnar að geta skilið heittrúaða? (Hann drekkur of mikið, hann reykir of mikið, hann trúir of mikið, hann talar of mikið, hann er með hana á heilanum, hann vinnur of mikið, hann safnar bara skuldum – hann fremur of margar sjálfsmorðsárásir - vitaskuld fellur hið síðasta ekki einfaldlega í röðina. Vitaskuld er málið flóknara.)
---
Fréttir af sjálfsmorðsárásum eru nú orðnar vanabundnar svo mönnum stendur minni og minni stuggur af þeim.
Án þess þó að hafa skilið þær.
Og það er þarna, í (jafnvel gagnkvæmu) áhugaleysi á að skilja, sem raunveruleg gjá verður til: þegar 'við' hættum að gera ráð fyrir intersúbéktífum tengslum, samskiptum, mano-a-mano, eh hombre!, við 'þá' og lærum bara að sneiða hjá löndunum þeirra, lærum að gera varúðarráðstafanir líkt og gegn dýrum í skógi (í besta falli húsdýrum í búi). 'Allt tjúllað meðal Araba'.
Hversu margir Íslendingar ætli tali annars arabísku?
---
Manni finnst maður þurfa að setja svo marga fyrirvara: ekki að ég sé hlynntur sjálfsmorðsárásum. Ekki að ég sé hlynntur íslamísku alheimsríki. Og svo framvegis. Sleppa því, þetta á að liggja í augum uppi.
En eitt 'ekki að': Ekki að heimsfréttirnar í dag snúist um sjálfsmorðsárásir. Þær snúast um stríð, beinlínis, þar sem landgöngulið Ísraela hefur ráðist inn í Líbanon og átök hafist þar, á landi, til viðbótar við sprengjuregn síðustu tíu daga. Ég geri mér ekki fulla grein fyrir því hver hefur skilgreiningarvaldið og hvers vegna þetta er enn ekki kallað stríð, heldur aðgerð. Kannski vegna þess að það eru nánast eingöngu óbreyttir borgarar sem falla. Ísraelar þekkja hins vegar nautnir, eru frjálslyndir í kynferðismálum, það er ekkert 'irrationalt' við þeirra hegðan eins og þeirra sem fórna sjálfum sér.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli