– standið því gyrtir sannleika um lendar yðar og klæddir brynju réttlætisins – en Haukur er fluttur hingað.
19.7.06
Enn um hægrisinnuð dildo og vinstrisinnaða listamenn
List er þó aldrei alveg byltingarsinnuð, hún getur ekki verið það, hún getur ekki einu sinni reynt það, ekki í skilningnum sem sjálfsmorðsárás er tilraun til að breyta öllu, eða vera allt (með því að verða ekkert); því list er alltaf unnin á forsendum þess að enn sé hægt að tákna, að ekki sé fullreynt að vera maður – og ný tákn eða ný notkun þeirra felur alltaf í sér arf undangenginna. Eða við getum vitnað í Houllebecq um að Lífið sé í grundvallaratriðum íhaldssöm afstaða ('Life is basically a conservative option'), þá er vandinn/takmörkunin/kosturinn við list sem byltingu að hún er líf.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli