Niðurstaða lögreglurannsóknar hefur leitt í ljós að Kínverjinn sem fluttur var særður til Reykjavíkur frá Kárahnjúkum á sunnudagsmorgun veitti sér áverkana sjálfur og notaði til þess naglbít. Því hefur maðurinn neitað við yfirheyrslur og segir tvo grímuklædda menn hafa ráðist á sig. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá embætti lögreglunnar á Seyðisfirði. Niðurstaða tæknideildar lögreglunnar í Reykjavík, sem sá um vettvangsrannsókn, hefur verið studd með áliti réttarmeinafræðings.
NFS, 24. ágúst 2006 19:13
Á heimasíðu fyrirtækisins Alcoa segir að fyrirtækið hafi styrkt lögreglumenn á Eskifirði og Reyðarfirði til að sækja námskeið erlendis. Inger L. Jónsdóttir sýslumaður á Eskifirði segir að embættið hafi talið verjanlegt að taka við styrki frá Alcoa þar eð lögreglumennirnir sem hans nutu hafi tekið við honum í eigin nafni og nýtt hann í frítíma sínum.
Rúv 21. ágúst 2006 12:29/15:53
2 ummæli:
Er þá loksins komnir almennilegir mafíubæir á Íslandi?
Home Builders
cement board siding Tips for building or remodeling your dream home.
Skrifa ummæli