Já, þetta er allt bara brandari. Ég var að koma af geðveikum fyrirlestri nóbelsverðlaunahafans J.M. Coetzee. Hann er doktor í málvísindum, en þar að baki með háskólagráður í stærðfræði og bókmenntum. Talar af fágun og skerpu – ég veit ekki við hvað á að líkja yfirvegun hans. Klukkutíma fyrirlestur settur saman úr tiltölulega stuttum lesköflum sem hann nefnir Opinions. Mér þótti afar vænt um umfjöllun hans um málfrelsi á Vesturlöndum, þar sem í salnum voru ýmsir sem halda að ritskoðun fari bara fram í öðrum löndum, sé sérkommúnískt/fasískt/íslamskt fyrirbæri. Í Ástralíu voru semsagt nýverið sett lög þar sem bannað var að tala vel um hryðjuverk. Sterkasti hluti fyrirlestrarins var hins vegar kafli þar sem Coetzee talaði um bölvun – curse – sem vopn hins undirokaða, sem geti aðeins vonað að bölvunin komi niður á herrunum, ef ekki í dag eða á morgun, þá með næstu kynslóð eða þarnæstu, að hún dofni bara ekki. Bölvunin verði, sagði hann, þegar ráðamaður hugsar með sjálfum sér: ætli ég verði bölvaður fyrir þetta? – en hristir síðan hausinn, segir hvaða vitleysa, það eru engir guðir til, ekkert afl sem nær mér, þetta fólk hefur ekkert vald og lætur vaða. Ungir Þjóðverjar spyrja: Hvers vegna ættum við að hafa samviskubit, við gerðum ekkert af okkur, það voru afar okkar og ömmur? Rétta svarið sé: Jú, þið þurfið að finna til þess því það er ykkar ógæfa að hafa fæðst sem barnabörn afa ykkar og ömmu. Að þessu sögðu bölvaði hann George Bush, börnum hans og barnabörnum, að þau mættu bölvuð vera um langa framtíð og skömm þeirra ekki gleymast. Af sömu yfirvegun og natni og hann síðan lauk máli sínu með skondinni sögu af metafýsískum skjálfta þegar maður mætir fallegri konu sem hann er orðinn of gamall til að skjálfa fyrir líkamlega.
Eftir fyrirlesturinn hnippti vel metinn íslenskur rithöfundur í öxlina á vini mínum og sagði: já, fyndnir gaurar þessir málvísindamenn. Um kvöldið spurði Egill Helgason í nýja þættinum sínum hvort þetta væri ekki bara hefðbundið „vinstramjálm“ – og í dag segir Fréttablaðið að salurinn hafi víða hlegið og augljóslega líkað lesturinn.
Þar með er málið afgreitt og við getum aftur farið að tala um Múslima. Ayaan Hirsi Ali missti út úr sér í gær, í þættinum hans Egils, að fólk sem byggi saman í frjálsu samfélagi þyrfti líka að búa við sömu hugmyndafræði. Svo dró hún það snarlega til baka – eða ekki hugmyndafræði, sagði hún, en sögu og skilning … eitthvað í þá veruna. Þetta heitir Freudian slip. Og er marktækt.
Frelsi sem hvílir á þeirri forsendu að menn samþykki ákveðna hugmyndafræði – nei, sögu og skilning – er ekki frelsi. Og það er hreint fáránlegt að þetta sé ekki hægt að nefna án þess að vera svarað með umskurði kvenna. Hvort er verra, krabbamein eða Aids? Hvaða keppni er þetta?
Ég áttaði mig á því á kvikmyndahátíðum fyrir nokkrum árum síðan að heimildamyndagerðarmenn leita æði margir út fyrir sínar heimsálfur til að finna viðfangsefni – þeir koma frá Evrópu eða Bandaríkjunum en gera myndir um vanda þróunarríkja. Það er sannarlega gott að benda á vanda þróunarríkja, já. En ég skildi þetta líka sem flótta … og hélt að hann væri bara myndrænn: vandi þróunarríkja festist auðveldar á filmu en vandi ríkra landa. Þar þarf fólk að bera vatn um langan veg, strax þar eru komnar þrjár mínútur með fallegu landslagi, hér um bil ókeypis.
Það vinstramjálm sem snýst um innri gagnrýni samfélaga á sjálf sig hvílir á langtíma – snýst um að ein kynslóð glopri ekki niður veruleika þeirra hugsjóna sem samfélögin voru reist á, í langri sögu. Þar liggur hættan þegar Bandaríkin opna Guantanamo Bay, og þess vegna er Guantanamo Bay verri staður en nokkrar aðrar óréttmætar fangabúðir heimsins: Því fangelsinu er ætlað að vernda hugsjón og sögu sem við sjálf játumst, en er frá upphafi til enda sjálft viðurstyggilegur glæpur gegn þeirri hugsjón, viðurstyggilegur glæpur gegn öllu sem áunnist hefur frá því kærleikslögmálið var orðað. Sem er, eins og Coetzee minntist á, trúlega stærsti pólitíski atburður okkar sögu.
Þeir eru annars að fara að reisa tjald, þarna í Guantanamo, til að rétta yfir föngunum. Það verður réttað yfir þeim í kippum, sex í einu, og ætti að taka fljótt og vel af.
Það er ekki langt síðan að vinstrimenn fundust á Vesturlöndum, það er gagnrýnendur valds og ríkjandi hugmynda, og þótti ekki við hæfi að banna þá. Sennilega gerist þess nú ekki þörf, ef þeir finnast einhvers staðar er nóg að taka þá tali – hverju hægrisinnuðu orði veraldar fylgir nú sá samræmdi klukknahljómur sannleikans sem aðeins heyrist þegar næstum allir eru á einu máli. Hann stenst enginn. Sumir þagna. Fleiri lúta höfði í andakt. Nóbelsverðlaunahafi hreyfir munninn en það bara heyrist ekki múkk.
Og ég nenni ekki að birta svona grein í blaði … það er ekki í boði núna, ég hef ekki fundið rithátt sem kemst í gegnum dóminn „vinstramjálm“. Ég hef ekki hugmynd um hvernig er hægt að segja þetta þannig að það skipti máli. Ekki frekar en Coetzee, virðist vera.
Kannski er þetta bara svona á Íslandi. 6. atriðið á lista yfir þau sextán sem Bandaríkin hafa fram yfir Ísland: Þar eru milljónir manna efins, og jafnvel gagnrýnin, um vald. Ég er að fara að hitta þau.
P.S. Ég fékk smáræðis bakþanka. Coetzee kom máli sínu víst til skila, og mig grunar að það ómi eða bergmáli lengur en dagblöð næsta dags gefa til kynna. Jæja, allt um það. Rista brauð.
