30.11.06

Verkafólk, ekki drekka

Í öllum hugsanlegum breytingum á áfengisverði eða áfengissölu, hvaða stefna gæti verið heimskulegri, verri, blátt áfram fáránlegri, en að hækka verð ódýrustu vína, en lækka dýrari tegundir? Þessi einarði vilji til að víkka bilið milli blankra og óblankra er – hvað, drepfyndinn? Hahaha! Kannski ríkisstjórnin sé launkommúnísk og vilji bara að verkafólk hætti að drekka, til að skerpist á stéttavitund þess. Pólverjar, leggið frá ykkur flöskuna! Ég er í öllu falli býsna ánægður með þá ákvörðun að flytja aftur til Frankfurt.

Engin ummæli: