31.1.05

Höfuðið af búknum



Kristján Jóhannson og Michael Jackson. Kristján Jóhannsson og Michail Jackson. Kristján Jóhannsson. Og Michael Jackson.

Hvað er að gerast? Ég byrja á að taka skýrt og greinilega fram að ég ætla ekki að ræða það sem sumir myndu nefna "staðreyndir málsins" því svonefndar staðreyndir málsins eru eins og oft það eina sem liggur ekki fyrir. Fróaði MJ þrettán ára pilti á búgarði sínum eða ekki? Bof.

Það sem gerir mál Jacksons sérstakt er meðal annars að hann er ógeðslega frægur. Málið er ekki eins og málið með kaþólsku prestana, því fer fjarri, og eiginlega hvergi jafn alvarlegt, hvað staðleysur varðar. En skyld eru þau, því einhverju er steypt af stalli. Eða, eins og jafnan er tilfellið, bent á að þarna er enginn stallur. Það er enginn keisari í fötunum.

Þar eru mál Kristjáns og Michaels skyld - Kristján sagði víst aldrei að Eyrún Magnúsdóttir væri rauð á brjóstunum, heldur á brjóstinu. Sem er svosem dónaskapur, en felur varla í sér kynferðislega áreitni. Hins vegar var til staðar nógu mikil löngun til að kippa undan honum stallinum til að valda múgsefjun og ef ekki misheyrn þá missögn: þeir sem heyrðu rétt í Kastljósinu voru leiðréttir yfir fyrsta kaffibollanum morguninn eftir: brjóstunum.

Staða þeirra í heiminum var ólík, en Kristján átti í skyldu sambandi við Ísland og Michael við heiminn. Kristjáni er hegnt fyrir að hafa ekki í alvörunni verið frægur. Hann var hylltur á Íslandi því hann tók að sér að fylla kategoríu sem landið hefur ríka þörf fyrir -- hann brúaði eitthvað bil, ef til vill bilið á milli Laxness og Bjarkar, hann var frægi gaurinn í tíu, fimmtán ár, á meðan við biðum. Síðan hefur verið vandræðaleg þögn í kringum hann eftir að fólk sá muninn á "frægum Íslendingi" og frægum Íslendingi. Sem loks brýst út í reiði og sjálfshatri landsmanna, fyrir að vera svona barnaleg fífl, fyrir að hafa þessa þörf -- "hvað vorum VIÐ að hugsa?" er hin raunverulega ásökun.

Sama ásökun er til staðar í máli Michaels, "hvað vorum við að hugsa?" (Hvað vorum við að hugsa?) Hins vegar virðist önnur ásökun vega þyngra í máli hans... því ólíkt Kristjáni sem er einfaldlega hrint úr kvínni sinni, hefur kví Michaels tekið yfir heiminn. Í raun er um næsta hegelíska hreyfingu að ræða (afsakið þessa zizesku, ég mun vaxa upp úr þessu, er bara að ganga í gegnum skeið ...) (tvö ár eftir, gróft áætlað) -- þar sem hið óþarfa höfuð er sneitt af búknum, en Michael Jackson er vitanlega hinn raunverulegi forfaðir hinnar svokölluðu krúttkynslóðar, og hinn óhugnanlegi sannleikur á bakvið hana. Og andlit hans er óhugnaður ... raunar má andskoti margt segja um þetta andlit, andlitið sem er bara gríma, andlitið sem er umframframleiðsla heimsmenningarinnar o.s.frv.

Því krúttkynslóðin er ekki séríslensk, þó hún rími vel við eitthvað í íslenskri arfleifð eða íslensku arfleysi, og verði þar afar sýnileg. Krúttkynslóðin er hin vestræna útþensla unglingsáranna, sem hefjast nú um tólf ára aldur og endast fram yfir þrítugt, fertugt og jafnvel lengur. Krúttkynslóðin er játning millistéttarbarnanna að lokinni 20. öldinn, það er að lokinni öldinni sem framleiddi allt sem Vesturlandabúar þarfnast, á því að þau séu í aðstöðu til að leika sér. Og meira að segja sannfærðustu róttæklingum, sem finnst að enn sé eitthvað ógert í heiminum, þar sem æði marga hungrar enn og suma svíður, er miðlað um krútthugtakið: það þykir sætt þegar þeir fara til Palestínu.

Norðdahl nokkur var að hringja í mig -- hatturinn hans og táfýlan voru víst lýst krútt á dögunum. Á öðrum tímum hefði það ekki þótt lykilhugtak við nálgun á útigangsmanninn.

Michael Jackson er sem höfuðið yfir búknum hin óbærilega spegilmynd og um leið hið óþarfa upphaf -- við sneiðum hann af eins og bolsévikar eigendastéttina. Og höldum áfram krúttinu á eigin spýtur.

Já, og kannski ... kannski er svipað uppi á teningnum með Kristján. Sama hreyfing. Ef til vill erum við öll orðin Kristján Jóhannsson, ef til vill höfum við öll nú komið okkur fyrir í kví blöðrubelgsins sem hélt hann væri frægur.

Nóg. H.

P.S. Moraði allt í málfarsvillum hérna ... fer að haska mér til Íslands sé þess nokkur kostur.

Engin ummæli: