28.2.07

„Ég er frjálsasta manneskja sem hefur verið til að því leyti sem málið varðar það að segja hvað sem er“

Rannsóknarniðurstöður kvöldsins:
google2.jpg

Google. Ekki fyrirbærið, ekki 'the Googleplex', þar sem ungir menn borða jógúrt og safna hári á hjólabrettum, heldur hluturinn sjálfur. Eða hluti hlutarins. Þetta er stærsta netþjónabækistöð fyrirtækisins enn sem komið er, ein af 12 alls, nýreist, í The Dalles í Oregon fylki Bandaríkjanna. The Dalles er 12 þúsund manna bær, það er á stærð við Akureyri, sem hingað til hefur unnið sér það eitt til frægðar að fyrsta sýklavopnaárás innan Bandaríkjanna átti sér stað þar árið 1984, þegar hryðjuverkahópur úr kommúnu í bænum, fylgismenn jógans Bhagwan Shree Rajneesh (fæddur Rajneesh Chandra Mohan Jain, en kallaði sig síðar Osho) eitruðu fyrir bæjarbúum með því að dreifa salmónellu í salatbari … til að hafa áhrif á kosningar.


Og víst lendi ég afvega. Eftirfarandi er haft eftir Osho á Wikipediu:

I am the most free person who has ever existed as far as saying anything is concerned. I can contradict myself in the same evening a hundred times. Because it is not a speech, it has not to be consistent. It is a totally different thing, and it will take time for the world to recognize that a tremendously different experiment was going on. … You are not making any effort; neither am I making any effort. I enjoy talking; it is not an effort.

Ekki spurðist aftur til sýklavopna í Bandaríkjunum fyrr en einhverjir sendu einhverjum anþrax þarna um daginn. Jógaleiðtoginn Osho dó árið 1990. Að hans sögn eitraði Reagan stjórnin fyrir honum. Til ljóðmælandans Osho spurðist ekki aftur fyrr en meðal svonefndra Nýhilskálda, upp úr aldamótum.

Jæja, aftur að Google. Nýreista netþjónabækistöðin í The Dalles þekur um tvo fótboltaleikvanga. Ástæða staðarvalsins er vatnsaflsvirkjunin sem heldur bænum gangandi. Umhverfisvernd.

google.jpg

  1. Osho hlýtur að vera sameiginlegur spámaður Nýhil, bloggheimsins, netsins og jafnvel fyrsta áratugar 21. aldar. „I am the most free person as far as saying anything is concerned.“
  2. Upphaflega fyrirætlun mín var að komast að því hvar tölvupósturinn minn er geymdur, annars vegar, og Google Earth hins vegar. Því að:
  3. Það er þessi saga frá Borges um kortið af ríki kóngsins í hlutföllunum 1:1. Og mig langaði að sjá hvað það tæki í raun mikið pláss. Og ekkja Borgesar er á leið til landsins. Núna virðist hins vegar miklu meira vera í húfi. Mig grunar að samtíminn sé allur í The Dalles. Ef
  4. einhver er fús að greiða mér fyrir ferðalag til The Dalles í leit að samtímanum má sá hinn sami skilja eftir athugasemd hér á síðunni og ég hef samband. Ef sáúhinnsamia er bókaforlag og finnst að blæjubíll í eyðimörk ætti að koma við sögu er það engin fyrirstaða, ég tek þá með mér skáld og kvikmyndagerðarmann.

Annars: Í komandi kosningum er ekki nóg að frelsa ástina. Við verðum líka að elska friðinn, hjarta lýðræðið, sigra vonina: Fögnum framtíðinni – dýpkum mennskuna!

Hér má sjá Osho segja tímabært að móðir Teresa stökkvi út í vatn.

27.2.07

Bljúgur á böðlanna fund

Forhúðarflex og sumar ástarinnar, jú. Frétt dagsins er hins vegar á baksíðu Morgunblaðsins – í ljósi sjöhundruð billjónfaldrar metafkomu bankastofnana verður nú skorin upp herör gegn skuldurum. Sýslumaður er búinn að fá nóg, hann hefur margreynt að ná á þetta fólk, það „beitir öllum brögðum,“ svarar til dæmis ekki í símann, bregst ekki við bréfum frá tölvukerfum, gleymir jafnvel að vinna sér inn tekjur í dagsins önn, sumir eru áreiðanlega drykkfelldir, aðrir beinlínis latir, margir er ég viss um að eru klámfíklar, þetta eru svörtustu sauðirnir, segja þeir, og smekklausir með eindæmum, með Hustler plaköt á veggjunum. Nokkur þúsund svörtustu og smekklausustu sauðirnir – ef ég væri sýslumaður væri ég líka búinn að fá nóg – þarna úti er smekkmaður sem missti af Kjarval því þú svaraðir ekki í símann þegar ég var að reyna að hafa af þér dagana!

„Hjá sýslumanninum í Reykjavík liggja fyrir nokkur þúsund kröfur um fjárnám sem ekki hefur tekist að ljúka þar sem fólk hunsar boðanir sýslumanns. Sýslumanninum finnst fortölur nú fullreyndar og í sérstöku átaki sem mun standa yfir næstu daga munu einkennisklæddir lögreglumenn handtaka fólk sem hefur ekki sinnt boðunum, hvar og hvenær sem í það næst.“

Á baksíðunni er því bætt við að fólk verði sótt á heimili og vinnustaði, en ekki leitt út í járnum nema það taki upp á því „að slást“. Ég verð að viðurkenna að ég beinlínis man ekki eða veit ekki hvort ég á mál hjá sýslumanni núna, þau detta inn og út, ég reyni að búa ekki á lögheimili mínu til að dagarnir drukkni ekki í sýndarheimi innheimtubréfa – eina skuldin sem bíður nú greiðslu, það ég muni, er við lífeyrissjóð, vegna skylduaðildar að alþjóðafyrirtækjum. Framtíðarég heimta að samtímaég fjárfesti í vinnu barna í þriðja heiminum. Bregðist ég  ekki nú þegar við þeirri kröfu minni, sendi ég á mig lögfræðinga og að lokum lögregluna. Bregðist ég við með mótþróa eða offorsi verð ég leiddur burt í járnum.

Þá er betra að vera hinu megin sæstrengs, þar sem kaffibollinn kostar eina evru og grasið er, í marsmánuði, bókstaflega grænna. Nafli minn kallar. Eiríkur Guðmundsson og RÚV munu sjá um baráttuna gegn fasismanum á meðan, ásamt framannefndu áhugafólki um forhúðarflex og ástir. Og nýtrúlofuðum. Næsta ágúst verður hópgifting á Kastrupflugvelli.

Ég lofa að blogga aldrei aftur um fréttir. Og segja aldrei aftur blogga.

Muflur, kaffi og bukkake á Vg

Einu sinni var haldin ritgerðasamkeppni á vegum japanska sendiráðsins um raunveruleg eða hugsanleg tengsl Íslands og Japan, verðlaun voru tveggja vikna ferð héðan þangað. Ég skrifaði um vöntun erótískrar hefðar á Íslandi, sem mætti bæta úr með innflutningi, hvernig við gætum lært af aldagömlum bindinga-, pyndinga- og niðurlægingarhefðum Japana.

Ég komst ekki til Japan, enda var þetta vanhugsað, ég ungur og óstöðugur. Ósæmissía á Cantat-3 sæstrenginn er betri hugmynd. Bukkake er ekki upprunnið í fornum japönskum giftingarsiðum, til að óska brúðinni frjósemi, hrísgrjónasiðurinn Vestræni á ekki rætur sínar þar. Bukkake var fundið upp á 8. áratugnum, af japönskum kvikmyndagerðarmönnum sem var bannað að sýna reistan reður í myndum sínum. Hins vegar var hvergi minnst á sæði, og því fór sem fór. Tillaga Steingríms J. gengur enn lengra og gæti orðið til að þessi þjóð uppgötvaði loks … erótík? Kynlíf? Hvaða orð er til yfir þetta á íslensku sem er ekki einhvern veginn væmið og vemmilegt, annað en einfaldlega klám? Ég veit ekki til þess að mín kynslóð elskist, hún ríður. Og horfir á klám.

Líta má á myndbandið hér sem einarða stuðningsyfirlýsingu við tillögu Steingríms J. og svo fjölmargra annarra um bætta klámmenningu Íslendinga:



Húsinu mínu verður annars breytt í hótel á næstunni, ég flyt af Vg á miðvikudag/fimmtudag, fer til útlanda á föstudag og þarna á milli, í einn, tvo eða þrjá daga, bjóðast ókeypis mubblur heima hjá mér. Og kaffi. Og ég er með bækur og eldhúshellur í láni frá einhverjum ykkar. Smekkmenn og -konur, að hika er sama og hrapa, lítið við.

26.2.07

Morðingjar heimsins og myrkraverkaher

Það þarf að gæta að því að þetta birtist alltaf einhvers staðar, við og við. Böðvar Guðmundsson, í söng Silju Aðalsteinsdóttur:

Vöggukvæði róttækrar móður

Enn syng ég gamalt stef við þinn sængurstokk í kvöld
er sólin rennur langt að fjallabaki
um þá sem sitja sléttir og slóttugir við völd
og sleppa aldrei neinu fantataki.
Morðingjar heimsins og myrkraverkaher
munu reyna að draga úr þér kjarkinn
en gleymdu því samt aldrei að meira en maklegt er
að á mörgum þeirra höggvist sundur barkinn.

Þeir eiga glæstar hallir þeir eiga lúxusbíl
þeir eiga meir en nóg til hnífs og skeiðar
þeir kæfa okkur í táragasi og kalla okkur skríl
þeir koma okkar vandræðum til leiðar.
Morðingjar heimsins og myrkraverkaher
munu eflaust pína þig til dauða
en gleymdu því samt aldrei að meira en maklegt er
að úr mörgum þeirra vætli blóðið rauða.

Svo segi ég að lokum fyrst sólin hnigin er
og svefnsins engill strýkur þér um hvarma
að margan góðan drenginn þeir myrtu þar og hér
og margur hlaut að dylja sína harma.
Morðingjar heimsins og myrkraverkaher
myrða okkur líka einhvern veginn
en gleymdu því samt aldrei að meira en maklegt er
að af mörgum þeirra væri skjátan flegin.

23.2.07

Eitt eilífðardúndur með titrandi tár

Aðsókn að Hvalveiðunum þrefaldast í hvert sinn sem Þórdís minnist á þær á sínu bloggi. Ég kann að meta þetta, kærar þakkir.

Ég var annars að reyna að hafa uppi á skyrauglýsingum sem birtust hér um árið, þar sem ungar stúlkur með rjómaskinn sleiktu út um á meðan hvítt skyrið flæddi um vanga þeirra … svona talandi um Bændasamtökin. En auglýsingarnar virðast hafa verið teknar úr umferð, og kannski var ég bara að ímynda mér þetta.

Annars á maður ekki að vera að blogga um fréttir. Meiri eilífð, minni tíðindi. Hér kemur texti myndasögunnar, eitt eilífðardúndur með titrandi tár, góða helgi öll.

---

Áliðið.
Það er
of seint.

Á íslensku vantar orð
yfir grunntón heimsins.

Klúður.
Mistök.
Þrot.

Harla gott
þýðir: Þetta mistókst.
Við erum mistókst
ekkert nema illska alla daga
dagar okkar taldir
og munum þó hírast hér
þar til jörðin kólnar
eða hitnar
þar til við tökum að höggvast á
og Bush einn verður eftir
murkandi líf úr einkaþotu
og gróðurhúsaáhrifin

drepandi alla í Abu Ghraib. Og gróðurhúsaáhrifin drepandi Paris Hilton og kýlandi fötur alls staðar. Og gróðurhúsaáhrifin drepandi fuglaflensu og drepandi Sjíta og Súnníta og drepandi Hamas og Fatah og gróðurhúsaáhrifin drepandi böðlana sem hengdu Saddam Hussein og drepandi Michael Jackson og gróðurhúsaáhrifin drepandi barnaníðingana og gróðurhúsaáhrifin drepandi börnin og alla, gróðurhúsaáhrifin takandi upp hnífa og skerandi á kvið, gróðurhúsaáhrifin drepandi fuglana og mennirnir drepandi hver annan deyjandi úr þorsta, og gróðurhúsaáhrifin svíðandi bush nema George, sem verður með dætrum sínum í einkaþotu eða geimstöð og mun með Dick og þeim stúlkunum og kannski einhverjum vinum og vandamönnum sjá til þess að mannkyn geti snúið aftur … hún mun rísa úr hafinu, klónjörð, með klónmönnum og konum og hver einasti litningur í hverri einustu frumu hvers eins og einasta þeirra verður 100% Bush, 100% hita- og brennisteinsþolinn Bush, Bush börn og Bush konur og Bush menn, Bush strákar sem verða skotnir í Bush stelpum, eignast litlar Bush fjölskyldur og ala þær upp á sviðinni jörð Texas, borðandi hunda eða háhyrninga, einhverja aðra skepnu sem meikaði þetta. Hugsaðu þér, svona er framtíðin og þó mun ekki krókstafur lögmálsins falla úr gildi, en hvað með Feurbach spyr Eva Bush Adam Bush sem ypptir öxlum og reynir að átta sig á hugtakinu varningsblæti, sagan endurtekur sig ekki en hún rímar mun hégómafullur rithöfundur segja og brosa að sjálfum sér, fá geðveikt deja vu en muna ekki um hvað, heldurðu að það sé bara einhver taugaboð eða tákn um eitthvað?
Heldurðu að þetta séu bara einhver taugaboð eða tákn um eitthvað?

Heldurðu
að þetta séu bara einhver taugaboð
eða tákn um eitthvað?

(Ef það er eitthvað sem ég þoli ekki er það svona banal naífur pólitískur kveðskapur skilurðu, lesendabréf í formi ljóða eitthvað sem er ekki neitt eða hvers vegna í andskotanum það er ekki ekki þetta er ekki eða þú ert ekki … þó þér liggi eitthvað á hjarni hjarta meina ég skilurðu það er Það er eitthvað, æ, misskilningur allt … menntaskólalegt, mig langar að sjá eitthvað fullorðins eitthvað um er þetta kannski allt búið? er kannski heyrðu er þetta eðla!? þetta er eðla! Dísa, koddu með myndavélina, það er eðla hérna á barnavagninum, hún hreyfir sig ekki, sjáiði, grafkyrr, eins og stytta, græn stytta fljót, Dísa fljót … nei hún er farin! Jæja. Jæja, hva … nei, jæja. Skiptir ekki máli. Skiptir ekki máli, sagði ég. Já en þessi texti, æ, ég … það er bara engin … kannski ætti að leggja niður þessa tungu. Þessa tungu niður.)

Á upprunamálum Biblíunnar verður Bush skrifað Bsh sem er líka skammstöfun fyrir The British Society for Haematology, samfélag breskra blóðsjúkdóma, taugaboð eða tákn um eitthvað – og Bosch und Siemens Hausgeräte og við vitum öll hvað þau framleiddu á sínum tíma, er það ekki? svo ekki sé minnst á Bundesamt für Seeschifffahrt und Hydrographie og Backstreet Heroes sem er vefrit um mótorhjól og ungar konur á nærfötum, don't get me fucking started!

Allt sem ég geri geri ég af eigingirni og hégóma
og myndi fara í brjóstastækkun ef það meikaði nokkurn sens
og allt hitt, bótox í barmana, allt …

Allt sem ég geri geri ég af eigingirni og hégóma
sýndarréttarhöld
falskar játningar

betur fer þá á því hinu
að tala um aðra:

djöfulsins drulluheimski hávaðasamtími, hvæsi ég í kór við alla,
það heyrist ekki einu sinni til sýndarréttarhaldanna
sagðirðu sýndarbrjóstahaldanna sagðirðu klám?

þetta eru login orð
það er lykkjufallið sem talar:
ég er ekki viss, segir það,
um að nokkurt ykkar
verðskuldi annað líf

athugið: þetta sagði lykkjufall

22.2.07

Klám og gæska

Ég lýsi mig sammála Rafauganu, hér um bil í einu öllu, með fyrirvara um það þó að ég er meiri femínisti en hann.

Það er eitthvað verulega uggvænlegt við það þegar allir – og nú ber að skilja 'alla' sem 80% eða hærra hlutfall þeirra sem segja meiningu sína á opinberum vettvangi, undir nafni – eru sammála. Þegar bændasamtökin, Vilhjálmur Þ., Geir Haarde, biskup, iðnaðarráðherra og formaður Framsóknarflokksins, eru á einu máli með 'róttækum femínistum' finn ég ekki bara fyrir tortryggni heldur vottar fyrir skelfingu. Allir voru sammála um að vilja ekki klámframleiðendur til Íslands. Og allir unnu. Þannig.

Það lágu í loftinu nokkuð spennandi fyrirætlanir um að koma konum sem ekki leika í klámi á forsíður tímarita, slá einhver heimsmet, vekja athygli á femínisma á meðan hrútspungarnir væru á landinu. Og einhverjir gerðu ráð fyrir að sletta skyri. Þetta hefði verið gott, eitthvað í ætt við það þegar Palestínumaðurinn knái settist niður og snæddi kvöldverð með hórum og innheimtulögfræðingum. Það er, hóparnir hefðu þó í öllu falli mæst. Ef það að meina fólkinu aðgang að landinu er ekki mannréttindabrot að lögum er það í öllu falli mannréttindabrot í anda.

Húmanismi er góð hugmynd og gengur í grundvallaratriðum út á að við, manneskjur, glötum aldrei rétti okkar til að mæta hvert öðru í samræðu. Meira að segja morðingjar mega skrifa bækur. Niðurstaða Bændasamtakanna var aðskilnaður heima. Enda hefði það áreiðanlega skaðað ímynd fyrirtækisins að taka á móti svona fólki.

Burtséð frá því má nú horfa á hugtakið 'femínismi' hverfa með ljóshraða upp í heim mýtunnar, þar sem það verður inntakslaus aðgangsmiði að þátttöku í pólitík og samræðu, allavega fram að næstu kosningum. Það er einmitt þá sem hugtak verður brúklegt í hvaða augnamiði sem er og mun vafalaust nýtast Birni Bjarnasyni vel á komandi misserum að ræða um kvenréttindi til að verja strangari gæslu og eftirlit með fólki á landamærum og innan þeirra.

Hugmyndafræði sem ætlar sér að vera frelsandi ætti látlaust að skoða sjálfa sig undir ljósi anarkisma. Eða villuljósi … þegar gildishlaðið einkunnarorð einhverrar hugmyndafræði verður aðgöngumiði að heiminum má ætla að verið sé að beita því til annars en uppreisnar. Munum að meira að segja kristni var einu sinni frelsandi afl undirokaðra. Saga kirkjunnar og páfastóll er hættan sem allir vel meinandi menn þurfa að hafa í huga.

Ég vona annars að Björn braggist eftir veikindin. Mér finnst hann um margt kjánalegur en það er trúlega fyrst og fremst vegna þess að hann er fæddur til valda.