20.7.06

Sjalfsmorðsarasarhneigð (og demantsskreytt dildo)

Hið ógnvænlega við sjálfsmorðsárásarmenn er ekki að þeir drepi fólk, það eru allir að gera um þessar mundir, hið ógnvænlega við sjálfsmorðsárásarmenn, í hugum vestrænna áhorfenda, er að þeir drepa sjálfa sig. Hratt og örugglega, ólíkt reykingamönnum sem vekja nokkurn ugg hjá fólki en geta þó aldrei verið vissir um að deyja auk þess sem sígarettur ku veita einhvers konar nautn – „Hvað gengur manninum til? Hvað fær hann út úr þessu?“ er upphrópun manns sem heyrir af sjálfsmorðsárás í fyrsta sinn.

Þetta með reykingamanninn er ekki bara lélegur brandari, heldur myndi 'sjálfsmorðsárásarhneigð' meðal vesturlandabúa helst falla undir áráttuhegðun. Allt sem miðar ekki að nautn má skilgreina sem sálræna sjúkdóma á Vesturlöndum. Hvernig á samfélag nautnarinnar að geta skilið heittrúaða? (Hann drekkur of mikið, hann reykir of mikið, hann trúir of mikið, hann talar of mikið, hann er með hana á heilanum, hann vinnur of mikið, hann safnar bara skuldum – hann fremur of margar sjálfsmorðsárásir - vitaskuld fellur hið síðasta ekki einfaldlega í röðina. Vitaskuld er málið flóknara.)

---

Fréttir af sjálfsmorðsárásum eru nú orðnar vanabundnar svo mönnum stendur minni og minni stuggur af þeim.

Án þess þó að hafa skilið þær.

Og það er þarna, í (jafnvel gagnkvæmu) áhugaleysi á að skilja, sem raunveruleg gjá verður til: þegar 'við' hættum að gera ráð fyrir intersúbéktífum tengslum, samskiptum, mano-a-mano, eh hombre!, við 'þá' og lærum bara að sneiða hjá löndunum þeirra, lærum að gera varúðarráðstafanir líkt og gegn dýrum í skógi (í besta falli húsdýrum í búi). 'Allt tjúllað meðal Araba'.

Hversu margir Íslendingar ætli tali annars arabísku?

---

Manni finnst maður þurfa að setja svo marga fyrirvara: ekki að ég sé hlynntur sjálfsmorðsárásum. Ekki að ég sé hlynntur íslamísku alheimsríki. Og svo framvegis. Sleppa því, þetta á að liggja í augum uppi.

En eitt 'ekki að': Ekki að heimsfréttirnar í dag snúist um sjálfsmorðsárásir. Þær snúast um stríð, beinlínis, þar sem landgöngulið Ísraela hefur ráðist inn í Líbanon og átök hafist þar, á landi, til viðbótar við sprengjuregn síðustu tíu daga. Ég geri mér ekki fulla grein fyrir því hver hefur skilgreiningarvaldið og hvers vegna þetta er enn ekki kallað stríð, heldur aðgerð. Kannski vegna þess að það eru nánast eingöngu óbreyttir borgarar sem falla. Ísraelar þekkja hins vegar nautnir, eru frjálslyndir í kynferðismálum, það er ekkert 'irrationalt' við þeirra hegðan eins og þeirra sem fórna sjálfum sér.

Efi, hnefi

Ég skrifa 'iðka efa' en les sjálfur endurtekið 'iðka hnefa'. Til eru vinstrimenn sem iðka hnefa, já, en hann verður aldrei samur (í höndum þeirra?) eftir Foucault og Zizek – merkilegt að hafa ekki séð minnst á það í samhengi við hnefaríðingar Foucaults að hnefinn er vitaskuld tákn uppreisnarmanna, byltingarsinna, róttæklinga – hvaða merkingu hefur það að stinga honum, ekki sem tæki, heldur sem tákni, upp í rassinn á vini sínum? Þöggun? Friðþæging? Eða var það allan tímann þangað sem hnefinn stefndi (til að stöðva hægðir eða sækja saur)? Í öllu falli er þetta myndverkið sem Sigurður Guðmundsson gleymdi að gera á sínum yngri árum: Efi, hnefi.

19.7.06

Enn um hægrisinnuð dildo og vinstrisinnaða listamenn

List er þó aldrei alveg byltingarsinnuð, hún getur ekki verið það, hún getur ekki einu sinni reynt það, ekki í skilningnum sem sjálfsmorðsárás er tilraun til að breyta öllu, eða vera allt (með því að verða ekkert); því list er alltaf unnin á forsendum þess að enn sé hægt að tákna, að ekki sé fullreynt að vera maður – og ný tákn eða ný notkun þeirra felur alltaf í sér arf undangenginna. Eða við getum vitnað í Houllebecq um að Lífið sé í grundvallaratriðum íhaldssöm afstaða ('Life is basically a conservative option'), þá er vandinn/takmörkunin/kosturinn við list sem byltingu að hún er líf.

Glott listamannsins

Viðbót um dildóin og listina: Reyndar er enduruppgötvun kynlífsleikfanga, og rímix á forsendum auðlegðar og celebrity-kúltúrs, jafn tæk list og margt það sem skapað er innan ramma listaheimsins í dag, og það er ekki rétt að hún sé efalaus. Það er, ég veit ekki nema Zinn glotti sjálf. Í dag er glott listamannsins er ein grundvallarforsenda stöðu hans sem slíks. Og er jafnvel hætt að vera nóg, er jafnvel orðið vanabundið, er jafnvel úr sér gengið.

Vinstri

Vinstri er tvennt: óbeit á valdi og að iðka efa.
Það er ekki tilviljun og það er ekki sögulegt ofbeldi eða heimtufrekja vinstrimanna að fleiri miklir listamenn 20. aldar voru vinstrisinnaðir en hægrisinnaðir. Óþolið gegn valdi er sama afl og efi um ásýnd hlutanna. Að taka ekki því sem manni er veitt sem gefnu er fyrsta forsenda allra lista.
Það er hins vegar ekki fyrsta forsenda allrar sköpunar. Það er hægt að skapa efalaust. Sjá. (Ekki til að gera lítið úr völundarsmíð Shiri Zinn, en þessi smíð verður ekki að list fyrr en búið er að veita ummæli um hana – síðasta skrefið, sem gæti til dæmis verið einhvers konar glott, kemur utan að og klárar verkið, ef það vill á annað borð vera listaverk. Margt er ágætt annað en list.)
Óbeit á valdi og iðkun efa eru nátengd en ekki hið sama. Það er, þau verður að sjá hvort í sínu lagi til að leiða í ljós dýnamíkina á milli þeirra, sem getur orðið á stöðnun, þegar vinstrið tekur að efast um hneigðir sínar frá valdinu. Og ruglast jafnvel svo mikið í ríminu að hann gleymir þeim alveg. Þá verður Samfylkingin til.

18.7.06

Til hamingju, Island!

Einar-Axel-OL Ég og bróðir minn ætlum að opna sendiráð í Ljubljana við tækifæri.