14.11.04

Hermenn finna lík sem þeir telja vera af vestrænni konu

Fyrirsögn og þetta hér að neðan fengið af mbl.is (14.11.2004 10:05) – þetta er semsagt fréttasyrpa af ljóshærðu líki:

Bandarískir landgönguliðar fundu í dag limlest lík konu sem þeir telja vera af vestrænum uppruna á götu í miðborg Falluja. Líkið lá á götunni, hulið blóði drifnu klæði. Hermennirnir óttast að það sé tengt sprengigildru og ætla að láta hunda þefa eftir sprengiefnum. Liðsforingi í Bandaríkjaher segir „80% öruggt“ að um sé að ræða lík konu frá Vesturlöndum, þótt ekki sé búið að rannsaka það nema lauslega.

Vitað er um tvær vestrænar konur sem rænt hefur verið í Írak. Margaret Hassan, 59 ára yfirmanni CARE hjálparstofnunarinnar í Írak, var rænt 19. október og Teresa Borcz Khalifa, 59 ára Pólverja, var rænt í síðasta mánuði. Ræningjar beggja höfðu m.a. krafist þess að erlent herlið yfirgæfi Írak.

Líkið sem fannst í Falluja er af konu með ljóst, sítt hár

Fyrirsögn og eftirfarandi af mbl.is:
Líkið, sem bandarískir landgönguliðar fundu á götu í Falluja í morgun, er af vestrænni konu með sítt ljóst hár. Það er afar illa leikið; allir útlimir afskornir, háls skorinn og iður úti. Vitað er um tvær vestrænar konur sem rænt var í Írak; Margaret Hassan og Pólverjann Teresa Borcz, en sú síðarnefnda er ljóshærð.

Ber að skilja þetta sem svo að bandarískir landgönguliðar hafi fundið eitt lík í Írak, það hafi komið þeim allóþægilega í opna skjöldu, rannsókn standi yfir og komið hafi í ljós að líkið var af vestrænum uppruna?

Eða er Morgunblaðið í alvörunni að endurflytja frétt af vestrænu líki, í ljósi þess eins að það er vestrænt lík og þannig, ólíkt flestum hinum líkunum í Falluja, í frásögur færandi? Getiði ekki falið skömm ykkar aðeins betur, strákar? Getiði ekki allavega þóst einhvern veginn reyna að dylja svona fréttamat?

10.11.04

Sa þetta a kistunni

"Sá rekaviður sem ég tíni saman á strönd skáldskaparins getur aldrei staðist samanburð við hinar laufprúðu eikur í myrkviðum lífsins," segir Þráinn Bertelsson í aðfararorðum bókarinnar.

Mér finnst oftar og oftar óþarft að segja nokkuð um veruleikann. Það dugir að benda á hann. Þannig hef ég engin ummæli um skáldmál Þráins. Ekki frekar en það að Bush vann kosningarnar eða að verkfall kennara heldur áfram. Í fullkomnu trausti til sköpunar- og túlkunarhæfileika lesenda ætla ég aldrei að leggja fram neitt sjónarhorn á veruleikann framar enda er það ekkert nema ofbeldi tilkomið af einræðistilburðum höfunda sem er ættað allt frá hugmyndinni um bók bókanna, þegar aðeins var ein bók í heiminum og henni átti að hlýða. Gæti ég skipað þó mér væri hlýtt?

Cut 'n' Paste, baby, cut 'n' paste …

Rændi þar og ruplaði, elskan, rændi og ruplaði.

http://scarequotes.typepad.com/dfn/misc/:
If the whole "we are but one of an infinite number of multiverses" theory is true, there should be a universe out there that's exactly like ours except that Breathless and Contempt were directed by Jean-Luc Godot, the most famous Japanese movie monster is called Godard, and Samuel Beckett wrote a play called Waiting for Godzilla.
I would like to visit that universe, just for the laughs.

9.11.04

WaldemarLAN!

Þar kom að því! Jibbí! Ég er sítengdur! Ég lofa því að hitta aldrei aftur fólk!

8.11.04

Tiðindi af Valdimarsstræti

Jæja … gott og vel og jæja … hm … Rafauga segist ekki hafa ekkert að segja, ég hef ekki heldur ekkert að segja, þannig lagað … bof. Langt því frá. Í fréttum er þetta helst: Godot stefnir á að koma þann 17 þessa mánaðar. Hann er búinn að kaupa flugmiða. Framhald þeirrar sögu verður sjálfsagt rakið í næsta Reykjavík Grapevine, því fyrirmyndarblaði. Stay tuned.

Ný hilla í eldhúsinu er til sannkallaðrar fyrirmyndar og gerir eldhúsið bjartara en ofvaxna bókahillan sem ég hafði troðið upp á borð, bjartara og ánægjulegra ídvalar.

Námslán annarinnar er uppurið. Atvinnuleysi í Frönsku Pólynesíu virðist algjört. Langtum vænlegra virðist að stofna fyrirtæki en leita vinnu. Vöruframboð í borginni er hins vegar all nokkuð.

DSL tenging ætti að opna á morgun.

Veður hefur verið með afbrigðum venjulegt síðustu daga.