Við spúsa mín erum að leita að íbúð í Reykjavík fyrir veturinn. Við hummuðum fram af okkur tilboð upp á 100 þúsund króna leigu, því okkur þótti það vera yfir strikið - en nú benda menn mér á 130 til 150 þúsund króna íbúðir, sem fínan díl. Í fúlustu alvöru.
Við erum að tala um íbúð fyrir tvennt, karl og konu, sem vilja helst vera án bíls og þannig nálægt miðbæ og háskóla.
Ég hummaði víst burt íbúð á 80 þúsund, vegna þess að mér fannst hún ívið of pen.
Ef einhver getur gefið ábendingu um heppilega íbúð á sanngjarnri leigu væri gaman að heyra af henni. Við lofum að leggja okkur fram um að skrifa góðar bækur í íbúðinni.
H+B.
1 ummæli:
Keilir, en annað þarf að vera í skóla. 70 þús. og rafm.hiti.intern. og rútur í miðbæinn innifaldar. Virkar fyrir okkur, því annars eigum við ekki afgang til að éta. Betra að bíta í staðsetninguna en hið súra epli að vera svangur. Gúdd lökk!
Skrifa ummæli